fbpx Mövenpick Mansour Eddahbi | Vita

Mövenpick Mansour Eddahbi
5 stars

Vefsíða hótels

Mövenpick Hotel er fallegt fimm stjörnu hótel í Marrakesh, vel staðsett við nýja miðbæinn. Flott heilsulind og góður matur.

Á hótelinu eru 503 herbergi sem skiptast í tveggja til þriggja manna herbergi, fjölskylduherbergi og svítur. Herbergin eru rúmgóð og snyrtileg, stíllinn er huggulegur, veggir eru ljósmálaðir og teppi á gólfum.
Í öllum herbergjum er loftkæling, frítt internet, flatskjársjónvarp með gervihnattarásum, míníbar, teketill, gott öryggishólf, sími og skrifborð. Öllum herbergjum fylgja svalir eða verönd.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf en þar er bað eða sturta, hárbursti, sloppur og inniskór ásamt helstu snyrtivörum. 

Fimm frábærir veitingastaðir eru á hótelinu ásamt setustofu á þaki hótelsins. Fjölbreytt úrval marokkóskra og alþjóðlegra rétta er í boði og gæðin alltaf í fyrirrúmi, hvort sem njóta skal morgunverðar, hádegisverðar eða kvöldverðar. Einnig er hægt að fá sér grillaðan mat, snarl eða kaffi og meðlæti. Á barnum er gott að slaka á og kæla sig niður með ljúffengum kokteilum. 

Á hótelinu er starfrækt heilsulind sem býður upp á nuddpotta, sánu, sundlaug og hvíldarrými. Einnig er hægt er að panta meðferðir í tyrknesku baðhúsi, naglastúdíó og hárgreiðslustofu og svo er jógakennsla á staðnum. Einnig er ýmislegt við að vera fyrir fjölskyldufólk, bæði er krakkaklúbbur, sérstök rými fyrir barnafjölskyldur og svo getur hótelið haft milligöngu um ýmsa skemmtun fyrir allan aldur.

Mövenpick hótelið er flottur áfangastaður fyrir ferðamenn sem sækja Marrakesh heim.
Hótelið er í nýja hlutanum af borginni, um 3 km frá Medina svæðinu – eða gömlu borginni. Auðvelt er þó að finna samgönguleiðir þangað til að upplifa skemmtilega markaði, verslanir og veitingastaði. 
Fyrir ferðamenn sem vilja stunda fjölbreytta útivist er tilvalið að fara á hestbak, fjallahjól, ganga í Atlasfjöllum eða prófa einhvern af hinum skemmtilegu golfvöllum sem eru í grennd við hótelið.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 6 km

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Barnaleiksvæði
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Verönd/svalir
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun