fbpx NH Panorama Napoli | Vita

NH Panorama Napoli
4 stars

Vefsíða hótels

NH Panorama Napoli er 4 stjörnu hótel í nútímalegu háhýsi í miðborg Napolí. Staðsetningin er góð, stutt er að ganga að sögufrægum stöðum og verslunargötum. Hótelið er í hæstu byggingu Napolí, það eru 230 herbergi á hótelinu og þau byrja á 16. hæð hússins þannig að útsýnið úr herbergjunum er frábært. Veitingastaður og bar er á fyrstu hæð hótelsins þar sem hægt er að njóta ítalskrar matarmenningar. Morgunverðurinn er fjölbreyttur og borinn fram að hlaðborði. Lítil líkamsræktaraðstaða er á 16.hæð. 

Herbergin eru í nútímalegum stíl og innréttuð í ljósum litum. Þau eru öll með frábæru útsýni yfir borgina. Þau eru öll með sjónvarpi, loftkælingu/hitun, öryggishólfi, hárþurrku, minibar og frítt þráðlaust internet er um allt hótelið. 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 20 mín

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Hárþurrka
  • Herbergi

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun