fbpx Novotel Gdansk Centrum hotel | Vita

Novotel Gdansk Centrum hotel
3 stars

Vefsíða hótels

Þægilegt hótel á frábærum stað í hjarta borgarinnar, rétt við gamla bæjarhlutann. Veitingastaður og bar á hótelinu. Verslanir, veitingastaðir, söfn og mörg helstu kennileiti borgarinnar í næsta nágrenni.

Í hótelinu eru 158 herbergi, 23 fermetrar að stærð og ætluð frá tveimur fullorðnum upp í tvo fullorðna og tvö börn. Innréttingar eru smekklegar, viður millibrúnn og áklæði ljóst. Teppi er á gólfum. Standard herbergi eru búin stillanlegri loftkælingu og upphitun, flatskjársjónvarpi með gervihnatta- og greiðslurásum, síma, öryggishólfi, smábar og aðstöðu til að laga te og kaffi auk ókeypis þráðlausrar nettengingar. Á baðherbergi er sturta, hárþurrka og baðvörur. Executive herbergjum fylgir baðsloppur, fleiri snyrtivörur, iPod-vagga, kaffivél, vatn á flöskum og hraðari nettenging.
Novo Square heitir veitingastaðurinn á hótelinu. Þar er úrvals morgunverður af hlaðborði og í hádeginu og á kvöldin er hægt að velja sælkerarétti frá ýmsum heimshornum af matseðli. Setustofubarinn býður upp á svalandi drykki og létt snarl. Þegar veður leyfir er tilvalið að setjast út í hótelgarðinn og njóta matar og ljúffengra drykkja undir beru lofti. Í garðinum er einnig afmarkað leiksvæði fyrir börn.
Lítil líkamsræktaraðstaða er á hótelinu með nokkrum tækjum.

Móttakan er opin allan sólarhringinn og þar er farangursgeymsla, hraðbanki og hjólaleiga, auk þvotta-, þurrhreinsi- og strauþjónustu og Xbox-leikjatölvu fyrir börn.
Hótelið er á frábærum stað í miðborginni, með verslanir og veitingastaði í götunum í kring. Mörg söfn og helstu kennileiti borgarinnar eru í léttu göngufæri, til dæmis er 5 mínútna gangur að Dlugi-markaðnum. Almenningssamgöngur stoppa við hótelið og fyrir þá sem hyggjast leigja bíl eru bílastæði sem tilheyra hótelinu.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 17 km
  • Veitingastaðir: Á hóteli og allt um kring
  • Miðbær: Í miðbænum, rétt hjá gamla bænum

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun