fbpx Ondamar, Albufeira | Vita

Ondamar, Albufeira
4 stars

Vefsíða hótels

Gott fjögurra stjörnu íbúðahótel. Staðsett miðja vegu milli Laugavegarins og gamla miðbæjarins í Albufeira. Við hótelið er fallegur sundlaugargarður með sólbekkjum og snakkbar.

Íbúðirnar eru allar vel útbúnar, bjartar og fallegar og allar loftkældar með eldhúskrók, ofni sem er bæði örbylgjuofn og venjulegur bakarofn, ísskáp, uppþvottavél, sjónvarpi, útvarpi og svölum. Loftkæling er í íbúðunum. Öryggishólf eru í gestamóttöku.

Á hótelinu er veitingastaður, bar, innisundlaug og nuddpottur. Stutt er í alla þjónustu en veitingastaðir og kjörbúð eru í næsta nágrenni auk þess sem mjög stutt ganga er á skemmtistaði og bari.

Hægt er að velja um studio íbúðir, íbúðir m/1 svefnherbergi og íbúðir m/2 svefnherbergjum.

Ondamar útvegar sundlaugar- strandhandklæði endurgjaldslaust fyrir hótelgesti en greiða þarf tryggingu 10 EUR sem fæst endurgreidd þegar handklæðum er skilað.

Tvær studio íbúðir á hótelinu eru útbúnar með aðgengi fyrir hjólastóla. 

Um 10 mínútur tekur að ganga  á Laugaveginn og ströndin er í um 15 mín göngufæri. Hægt er að panta far með hótelskutlunni á ströndina og í gamla bæinn.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 45 km
  • Miðbær: 1 km
  • Strönd: 1 km
  • Veitingastaðir: Í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Íbúðir
  • Handklæði fyrir hótelgarð
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Ísskápur
  • Verönd/svalir
  • Hárþurrka

Fæði

  • Hálft fæði
  • Morgunverður
  • Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun