fbpx Palm Beach Club Carihuela, íbúðahótel

Palm Beach Club, Torremolinos
3 stars

Vefsíða hótels

Palm Beach Club Apartamentos hótelið er íbúðahótel í Torremolinos mjög vel staðsett rétt hjá Carihuela ströndinni. 
 
Á hótelinu eru 86 íbúðir sem allar eru reyklausar. Íbúðirnar skiptast í stúdíóíbúðir, fjölskylduíbúðir og íbúðarsvítur. Íbúðirnar eru bjartar og snyrtilegar. Veggir eru hvítmálaðir og öll húsgögn og innréttingar eru í ljósum litum. Flísar eru á gólfum. Stórir gluggar eru á íbúðunum og í þeim íbúðum sem eru með sjávarsýn er útsýnið út á Miðjarðarhafið eins og málverk. Á hótelinu er internet, í öllum íbúðum er eldhús með öllum helstu áhöldum til matargerðar, loftkæling er í öllum herbergjum, öll helstu húsgögn, sjónvarp með gervihnattastöðvum og öryggishólf. Stúdíóíbúðir eru einnig með svalir eða verönd með útihúsgögnum en þar er dásamlegt að slaka á eftir daginn. Baðherbergin eru mjög snyrtileg, þau eru flísalögð og þar eru hárþurrka og sturta.
 
Í hótelbyggingunni er staðsettur veitingastaður/bar þar sem hægt er að fá morgunverð og panta snarl og léttar máltíðir. Á barnum er hægt að kaupa svalandi drykki og kokteilarnir renna afar ljúft niður í sólinni í hótelgarðinum. Í byggingunni er einnig lítil matvöruverslun með nauðsynjar en stærri matvöruverslun er svo bara nokkrum skrefum frá hótelinu. Einnig eru veitingastaðir, kaffihús og barir í næsta nágrenni. Til dæmis er tilvalið að fá sér spænska smárétti, tapas.
 
Hótelgarðurinn er með góðri sundlaug og aðstöðu til sólbaðsiðkunar, nóg af sólbekkjum fyrir þá sem vilja sleikja sólina og sólhlífar fyrir þá sem vilja halda sig í skugganum með bókina sína. Stórt bókasafn er á hótelinu og setustofa með sjónvarpi. Ýmis þjónusta er á hótelinu, til dæmis er hægt að panta nuddara sem kemur upp á herbergið.

Í heildina er Palm Beach Club Apartamentos vel staðsett hótel, steinsnar frá göngugötunni, La Carihuela ströndinni  í Torremolinos. Hótelið er hentugt fyrir ólíka ferðamenn því þar er allt til alls. Á neðstu hæð er þvottaherbergi með þvottavél og þurrkara og góðar lyftur eru í húsinu. Nokkrar íbúðir hafa verið sérútbúnar með góðu aðgengi fyrir hjólastóla og hægt er að panta rafskutlur (e. scooter).

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 7 km
  • Strönd: 1 min göngufjarlægð, 200 m
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Barnaleiksvæði
  • Gestamóttaka
  • Aðgengi fyrir fatlaða: Efri hæðir aðgengilegar með lyftu
  • Lyfta: Fyrir efri hæðir
  • Nettenging: Þráðlaust net er aðgengilegt á sameiginlegum svæðum

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Kaffivél
  • Verönd/svalir
  • Hárþurrka
  • Íbúðir
  • Öryggishólf: Gegn gjaldi
  • Loftkæling: og kynding
  • Ísskápur: Lítill

Fæði

  • Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun