fbpx Paraiso de Albufeira | Vita

Paraiso de Albufeira
4 stars

Vefsíða hótels

Paraiso de Albufeira er gott fjögurra stjörnu íbúðahótel á góðum stað í Albufeira. Hótelið var byggt árið 2001 og uppgert árið 2008. Hótelið er stórt og eru þar 396 íbúðir á 8 hæðum. Garðurinn er fallegur og rúmgóður. Hótelið er í 10 mín göngufjarlægð frá gamla bænum. 

Á hótelinu eru stúdíó íbúðir sem rúma allt að 2 fullorðna, íbúðir með einu svefnherbergi fyrir allt að 4 fullorðna og íbúðir með tveimur svefnherbergjum fyrir mest 6 manns. Íbúðirnar eru í hefðbundnum stíl, flísar eru á gólfi og viðarlitaðar innréttingar. Öllum íbúðum fylgja svalir, lítið eldhús (kitchenette) með ísskáp, helluborði og hraðsuðukatli svo eitthvað sé nefnt. Sjónvarp og öryggishólf til leigu. Svalir eru með hverri íbúð. Frítt þráðlaust net er á öllu hótelinu. 

Garðurinn er mjög stór og rúmgóður með bekkjum við sundlaugina. Góð aðstaða er til sólbaðsiðkunar í garðinum og nóg pláss. Á hótelinu er einnig nóg af afþreyingu í boði fyrir unga sem aldna, mini golf, tennisvöllur, leikjaherbergi, og skemmtanir á kvöldin.
Gestir geta notið drykkja á einum af þremur börum hótelsins, og einnig eru þrír veitingastaðir á hótelinu. Hlaðborðsveitingastaður býður upp á morgun, hádegis- og kvöldverð.

 

 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 40 mín
  • Strönd: 20 mín gangur

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Barnaleiksvæði
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Íbúðir
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging: Frítt Wi-Fi

Vistarverur

  • Loftkæling
  • Ísskápur
  • Verönd/svalir
  • Íbúðir

Fæði

  • Allt innifalið
  • Hálft fæði
  • Morgunverður
  • Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun