fbpx Parque Central og Iberostar Varadero | Vita

Parque Central og Iberostar Varadero
5 stars

Hægt er að lesa meira um Parque Central hér
Hægt er að lesa meira um Iberostar Varadero hér

Parque Central er mjög gott 5 stjörnu hótel á frábærum stað í miðbæ Havana. Það er í göngufjarlægð við öll helstu kennileiti í gömlu Havana. Þrír veitingastaðir, fjórir barir og sundlaug á þakinu.
Á  hótelinu eru 427 smekklega og þægilega innréttuð herbergi sem öll eru loftkæld. Á öllum  herbergjum er einnig sími, gervihnattasjónvarp, öryggishólf, vekjaraklukka, regnhlíf og hárblásari á baði. Einnig er hægt að fá straujárn og straubretti til afnota á herbergi sé þess óskað.
Á þaki hótelsins er sundlaug og óviðjafnanlegt útsýni yfir borgina. Aðstaða til líkamsræktar. Auk þess er hægt að bóka nudd gegn gjaldi.

Iberostar Varadero er frábært 5 stjörnu hótel við ströndina í Varadero með öllu inniföldu.  Á hótelinu eru 386 rúmgóð herbergi í 11 byggingum sem standa umhverfis fallegan sundlaugagarð. Tripadvisor telur þetta hótel það besta í Varadero.
Öll herbergi eru rúmgóð og með svölum eða palli.  Í hverju herbergi er einnig loftræsting, gervihnattasjónvarp, geisladiskaspilari, sími, smábar, te og kaffivél, öryggishólf, straujárn og straubretti og  hárblásari á baði.
Í garðinum eru 3 frábærar sundlaugar og sundlaugarbar auk góðrar barnalaugar. Líkamsræktaraðstaða er á hótelinu sem og sauna og nuddpottur. Á hótelinu er einnig heilsulind sem býður upp á hinar ýmsu snyrti-, vellíðunar- og heilsumeðferðir gegn gjaldi.

Fjarlægðir

  • Veitingastaðir: Á hótelum og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Hárþurrka

Fæði

  • Allt innifalið
  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun