fbpx Parque Santiago, Playa de la Américas eða Ameríska ströndin, Tenerife

Parque Santiago IV, Playa de las Américas
3 stars

Vefsíða hótels

Parque Santiago III og IV er gott og eftirsótt íbúðahótel  á líflegum stað við Amerísku ströndina á Tenerife. Þar ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Fjölskyldufólk og ungt fólk á öllum aldri unir sér í frábærum sundlaugargörðum, við ströndina og svo er örstutt að skreppa í búðir á veitingastaðinn eða hvert annað sem hugurinn leitar.

Vart er hægt að hugsa sér betri staðsetningu á hóteli. Verslunarhús, minni verslanir, veitingahús, barir og önnur afþreying er götumegin við hótelið og hinum megin er ströndin. Undir hótelinu er verslunarmiðstöð með mörgum veitingastöðum, m.a. spænskum, ítölskum og kínverskum. Barir, kaffihús og alls konar ferðamannabúðir eru í næsta nágrenni. Þar sem sumar íbúðir hótelsins snúa út að mannlífi aðalgötunnar á Amerísku ströndinni þá verður að gera ráð fyrir því að eitthvert ónæði sé í einhverjum íbúðum.  

Íbúðirnar eru í nokkrum byggingum á Parque Santiago III og IV sem standa hlið við hlið, en gestamóttakan er í Parque Santiago III. 
Hótelið er mjög stórt svo nokkur gangur getur verið frá gestamóttöku að íbúðum. Ekki eru lyftur í öllum byggingum.

Sundlaugar og fyrirtaks sólbaðsaðstaða, með sólbekkjum sem ekki þarf að greiða fyrir eru við báðar byggingarnar en gestir geta nýtt sér garðana við báðar byggingar óháð því hvar gist er.
Glæsilegt leiksvæði fyrir börn með barnalaug og rennibrautum og er barnaleikvöllur fyrir yngstu kynslóðina. Stór og glæsileg líkamsrækt er einnig á svæðinu.

Hægt er að velja um stúdíóíbúðir, íbúðir með einu svefnherbergi og stofu eða íbúðir með tveimur svefnherbergjum og stofu. Í öllum herbergjum er eldhúskrókur eða eldhús, stofa, gervihnattasjónvarp, sími, öryggishólf og svalir. Hægt að leigja örbylgjuofn og DVD spilara í gestamóttöku. Vifta er í íbúðunum og er hún staðsett í stofunni en þær eru ekki loftkældar.
Íbúðir með tveimur svefnherbergjum eru sumar þannig að annað svefnherbergið er á efri hæð en þá er ekki hurð sem lokar það af frá neðri hæðinni.

 

Farþegar geta lent á annað hvort Parque Santiago III eða IV. Eins og staðan er núna vegna Covid takmarkana mega farþegar ekki fara á milli Parque Santiago III og Parque Santiago IV til að nota sundlaugarnar og garðinn.
Farþegar á Parque Santiago III þurfa að panta hvort þeir vilji nota barnasvæðið í sundlaugargarðinum fyrir eða eftir hádegi þar sem fjöldatakmarkanir eru þar í gildi. 

Fjarlægðir

  • Frá flugvelli: 19 km
  • Frá miðbæ: Er í miðbænum
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og allt um kring

Aðstaða

  • Nettenging
  • Barnasundlaug
  • Sundlaug
  • Líkamsrækt
  • Heilsulind
  • Gestamóttaka
  • Bar

Vistarverur

  • Íbúðir
  • Ísskápur
  • Kaffivél
  • Öryggishólf: Gegn gjaldi
  • Sjónvarp

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun