fbpx Pestana CR7, Funchal | Vita

Pestana CR7, Funchal
4 stars

Vefsíða hótels

Glæsilegt hótel sem þróað var í samstarfi Pestana hótelkeðjunnar og fótboltamannsins Cristiano Ronaldo. Hótelið er það heitasta í bænum, bæði hvað varðar hönnun og andrúmsloft.

Á hótelinu eru 48 herbergi sem öll eru tveggja manna. Hönnunin fléttar saman nýtískulegum iðnaðarstraumum, úthugsaðri LED lýsingu og öllum helstu þægindum auk stafrænna þæginda, og frábæru útsýni til fjallanna eða sjávar. Hægt er að njóta útsýnisins af svölum eða verönd sem fylgja hverju herbergi. Í öllum herbergjum er loftkæling, frítt internet, öryggishólf, flatskjársjónvarp með gervihnattarásum og sími. Baðherbergi eru flísalögð en þar eru baðkar og sturta, hárblásari og helstu snyrtivörur.

Á hótelinu eru bæði veitingastaðir, kaffihús og barir. Morgunmatur er innifalinn í verðinu. Veitingahúsið býður upp á gott úrval af gæðasalötum ásamt fjölbreyttu úrvali af réttum frá svæðinu og alþjóðlegum réttum. Á kaffihúsinu er hægt að panta pítsu og hamborgara sem eru þó ekki skyndibiti heldur annars konar matarupplifun. Bar er á þaki hótelsins þar sem hægt er að koma saman með góðum hópi eftir stórkostlegan dag í sólinni, súpa á bragðgóðum og svalandi drykk og horfa á sólsetrið.

Í hótelgarðinum er góð sundlaug og verönd með góðum sólstólum og aðstöðu til sóldýrkunar. Einnig er þar sána og heitur pottur. Hótelið er stutt frá öllu því helsta sem hægt er að sjá og gera í Madeira. Það hægt að eyða deginum við ströndina, fara í jóga, skemmta sér, versla og njóta alls þess sem Madeira býður upp á. Hótelið er stutt frá útsýniskláfnum sem ber ferðamenn upp hlíðina og er við hliðina á höfninni þar sem skemmtiferðaskip leggja að bryggju.

Hotel Pestana CR7 er góður kostur fyrir alla þá sem vilja þægindi, fallega hönnun og skemmtilegt andrúmsloft á hótelinu sínu. Síðast en ekki síst er það skemmtilegur áfangastaður fyrir alla aðdáendur Ronaldo.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 23 km

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun