fbpx Pestana Lisboa Vintage | Vita

Pestana Lisboa Vintage
4 stars

Vefsíða hótels

Pestana Lisboa Vintage hótelið er glæsilegt hótel á góðum stað miðsvæðis í Lissabon. Í næsta nágrenni við hótelið er því öll helsta þjónusta og verslanir. Stutt er í góðar samgöngur um alla borgina en þó er umhverfi hótelsins rólegt.

Á hótelinu eru 90 herbergi og íbúðir sem skiptast í tveggja manna herbergi, svítur og stúdíóíbúðir. Herbergin eru rúmgóð og fallega hönnuð. Þau eru ljósmáluð, litavalið er í ljósum tónum og sömuleiðis mjúk gólfteppin sem gera umhverfið afar kósý. Í öllum herbergjum er loftkæling, frítt internet, flatskjársjónvarp, míníbar og öryggishólf. Frá mörgum herbergjum er fallegt útsýni yfir borgina.

Morgunverður er borinn fram á fallega innréttuðum veitingastað á jarðhæð hótelsins. Fyrir utan veitingastaðinn er einnig verönd þar sem er yndislegt að sitja, næra sig og byrja daginn. Á veitingastaðnum er svo hægt að njóta máltíða af fjölbreyttum matseðli á kvöldin. Á hótelinu er einnig bar ásamt nokkrum góðum setustofum. Á efstu hæð hótelsins er opin setustofa með sófum og bekkjum þar sem hægt er að slaka á og njóta útsýnisins yfir þessa fallegu borg.

Staðsetning hótelsins hentar sérstaklega vel fyrir ferðamenn sem ferðast á eigin vegum, fjölskyldur og einnig þá sem þurfa lengri dvöl vegna viðskiptaferða. Neðanjarðarlestarstöð er steinsnar frá hótelinu sem hentar ferðamönnum mjög vel. Á hótelinu er einnig hægt að leigja hjól og skoða þessa fornu en um leið nútímalegu borg. Starfsfólk hótelsins er vingjarnlegt og tilbúið að aðstoða gesti við að skipuleggja heimsóknina til Lissabon og dagsferðir í nágrenni borgarinnar.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 8 km
  • Miðbær: 3 mán frá Praca Marques de Pombal

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Hárþurrka
  • Herbergi

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun