Poseidon Playa, Benidorm
Vefsíða hótels
Einfalt og gott hótel rétt við Poniente-ströndina í hinum líflega og vinsæla sumarleyfisbæ Benidorm.
Í Poseidon Playa eru um 300 herbergi sem rúma mest þrjá gesti. Herbergin eru einföld en þægileg, flísalögð og búin loftkælingu (frá júní fram í september), upphitun, sjónvarpi með gervihnattarásum og síma. Hægt er að leigja kæliskáp og öryggisgeymslu sérstaklega. Baðherbergi er marmaraklætt og fylgir hárþurrka. Þráðlaust netsamband er aðgengilegt gegn gjaldi alls staðar í hótelinu. Svalir með útsýni út á Miðjarðarhaf eru á öllum herbergjum. Hótelbyggingin er 17 hæðir og í henni eru fjórar lyftur. Þá er boðið upp á þjónustu eins og þvott, þurrhreinsun og straujun.
Stór veitingasalur er í hótelinu og þar er matur fram borinn á hlaðborði. Úr setustofubarnum er útsýni yfir ströndina og sjóinn og þar er boðið upp á skemmtanir á kvöldin. Yfir sumarleyfistímann er opinn bar á sundlaugarbakkanum þar sem gott er að svala þorstanum í Miðjarðarhafssólskininu.
Tvær sundlaugar eru við hótelið, sú stærri ætluð fullorðnum en sú minni börnum. Sólbaðsaðstaða með bekkjum og sólhlífum er við sundlaugarnar fyrir þá sem ekki nenna niður á strönd sem þó er ekki nema í fárra skrefa fjarlægð.
Á hótelinu er boðið upp á afþreyingu eins og biljarð, borðtennis, pílukast, fjölbreytta skemmtidagskrá og leikjaherbergi þar sem einnig er netaðgangur. Á sumrin er rekinn barnaklúbbur í hótelinu.
Það er á allra vitorði að Benidorm er með líflegri sumarleyfisstöðum á Miðjarðarhafsströnd Spánar. Þar er skemmtanalífið fjörugt og urmull af næturklúbbum, veitingahúsu, börum og verslunum. En fleira er hægt að gera en að djamma eða versla. Við ströndina er boðið upp á alls konar sjósport eins og seglbretta- og sjóskíðabrun og margt fleira. Tívolígarðurinn Terra Mitica er ekki langt undan og vatnsskemmtigarðurinn Aqualandia með ævintýralegum vatnsrennibrautum og laugum er í útjaðri bæjarins svo og Villaitana-golfvöllurinn fyrir þá sem stöðugt eru að hugsa um forgjöfina.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 58 km
- Miðbær: 1,5 km í gamla bæinn á Benidorm
- Strönd: 60 metrar
- Veitingastaðir: Á hótelinu og í nágrenninu
Aðstaða
- Sundlaug
- Skemmtidagskrá
- Veitingastaður
- Bar
- Barnasundlaug
- Gestamóttaka
- Herbergi
- Lyfta
- Nettenging: Þráðlaus nettenging á sameiginlegum svæðum og á herbergjum án endurgjalds
Vistarverur
- Sjónvarp
- Loftkæling
- Verönd/svalir
- Hárþurrka
- Öryggishólf: Hægt að leigja gegn gjaldi
- Ísskápur: Hægt að leigja gegn gjaldi
Fæði
- Allt innifalið
- Fullt fæði
- Hálft fæði