fbpx The President | Vita

The President
4 stars

Vefsíða hótels

Fjögurra stjörnu hótel staðsett í 8 mínútna göngufjarlægð frá lestarstöðinni en þaðan er hægt að komast í miðborgina á aðeins 5 mínútum. Við hótelið er glæsilegur garður þar sem hótelgestir geta notið útsýnisins og setið úti þegar vel viðrar. 

Á hótelinu eru 296 vel útbúin herbergi sem skiptast í tvíbýli, svítur og  fjölskylduherbergi sem hægt er að sérpanta.  Herbergin eru öll rúmgóð og þægilega hönnuð með smekklegum viðar innréttingum og parket á gólfi. Öll eru þau með sjónvarpi, te og kaffivél. Baðherbergi eru flísalögð og á þeim er að finna baðkar með sturtu, hárþurrku og helstu snyrtivörur. Öryggishólf eru inni á öllum herbergjum þar sem hægt er að geyma fartölvu og þráðlaus nettenging er á öllum herbergjum.

Á hótelinu er innifalinn morgunmatur sem er framreiddur af girnilegu hlaðborði á veitingastað hótelsins. Yfir daginn og á kvöldin er „a la carte“ veitingastaður opinn og er þar í boði mikið úrval af hinum ýmsu réttum sem eiga rætur sínar að rekja til  eldamennsku beint frá miðjarðarhafinu og fá því bragðlaukarnir að fara í skemmtilegt ferðalag. Herbergisþjónusta er á hótelinu og því hægt að panta mat uppá herbergi, sér matseðill er fyrir börnin.  

Þarna er glæsilegur bar þar sem hægt er að fá sér létt snarl og drykki yfir daginn jafnt sem á kvöldin og er þetta frábært tækifæri til að kynna sér heimsfræga belgíska bjórmenningu, úrval kokteila, gæða sér á sjóðandi heitu og bragðgóðu kaffi eða nánast öllu því sem hugurinn girnist.  Á þaki hótelsins er líkamsræktaraðstaða í boði fyrir hótelgesti. 

Hótelið er ekki staðsett alveg í miðbænum en stutt er að komast þangað bæði með lest og leigubíl og því auðvelt að ferðast á milli staða. 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 19 km
  • Miðbær: 0,5 km frá Brussels Nord-lestarstöðinni
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og allt um kring

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Verönd/svalir
  • Minibar
  • Hárþurrka
  • Loftkæling: og kynding

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun