fbpx Pyr Marbella | Vita

Pyr Marbella
3 stars

Vefsíða hótels

PYR Marbella hótelið er glæsilegt og nútímalegt íbúðahótel í Puerto Banus, Marbella. Skemmtileg staðsetning, stutt í fjörið á ströndinni og lífið á höfninni.

Á hótelinu eru 319 lúxusíbúðir sem skiptast í stúdíóíbúðir fyrir einstaklinga, stúdíó fyrir tvo til þrjá gesti eða fjölskylduíbúðir (stúdíó) fyrir tvo fullorðna og tvö börn. Svo eru svítur með einu svefnherbergi. Íbúðirnar eru bjartar og afar rúmgóðar, snyrtilegar og hönnunin er klassísk og nútímaleg. Gólfefni eru parket og flísar. Öll helstu húsgögn eru til staðar og aðstaða er til fyrirmyndar sem gerir það að verkum að fríið verður allt hið þægilegasta. Í öllum íbúðunum er lítið eldhús með helstu eldunaráhöldum, loftkæling, frítt internet, sjónvarp og öryggishólf. Baðherbergin eru flísalögð og koma með sturtu og baðkari, hárþurrku og helstu snyrtivörum.

Á hótelinu er morgunverður borinn fram af gæðahlaðborði. Þar er veitingastaður sem býður upp á Miðjarðarhafsrétti og hægt er að njóta kvöldverðar úti á veröndinni. Þar er kaffihús/bar þar sem er notalegt að setjast niður og slaka á yfir kaffibolla eða léttum drykk. Í hótelgarðinum er bar þar sem er hægt að njóta svalandi drykkja og fá sér snarl í svanginn. Einnig er stutt í fjölmarga veitingastaði, kaffihús og bari í nágrenninu.

Hótelgarðurinn er fallega gróinn og pálmatrén setja mikinn svip á garðinn. Í honum er sundlaug og önnur sérstök barnasundlaug. Garðarnir eru allt um kring en þó er góð aðstaða til að liggja í sólbaði.

Fjölmargt er hægt að gera sér til afþreyingar á hótelinu en til dæmis eru þar tennisvöllur og borðtennis, nuddstólar og fleira. Krakkaklúbbur er starfræktur fyrir börnin. Stutt ganga er niður á strönd fyrir þá sem vilja leika sér eða slaka á í sandinum og dýfa tásunum í Miðjarðarhafið.

Í heildina er FYR Marbella hótel sem hentar vel fyrir fjölbreytta ferðamenn. Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn og þar er starfsfólk boðið og búið að aðstoða við að undirbúa fríið m.a. að skipuleggja golfið.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 57 km
  • Strönd: Göngufjarlægð frá Puerto Banus ströndinni
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og allt um kring

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Verönd/svalir
  • Hárþurrka
  • Íbúðir
  • Loftkæling: og kynding
  • Ísskápur: Lítill

Fæði

  • Hálft fæði
  • Morgunverður
  • Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun