fbpx Radisson Collection Grand Place, Brussel | Vita

Radisson Collection Grand Place, Brussel
4 stars

Vefsíða hótels

Radisson Collection Grand Place er einnig kallað Radisson Royal Blu. Þetta er glæsilegt hótel á frábærum stað í hjarta Brussel. Aðeins fimm mínútna göngutúr er að gamla borgarhlutanum, Rue Neuve verslunarhverfinu og aðallestarstöðinni. 

Í hótelinu er 281 vistarvera sem skiptist í herbergi sem rúma allt að tveimur fullorðnum og tveimur börnum og svítur sem rúma allt að fjóra. Herbergin eru innréttuð á einstaklega fallegan og nútímalegan hátt, í mismunandi stíl: Urban, New York Mansion, Maritime og At Home. Á gólfum er parkett, flísar eða teppi. Auk loftælingar og upphitunar er flatskjársjónvarp með alþjóðlegum gervihnattarásum alls staðar, sími, aðstaða til að laga te og kaffi, öryggishólf og buxnapressa. Á baðherbergjum er baðker eða sturta, hárþurrka og baðvörur, hið minnsta. 
Þráðlaus nettenging er í öllu hótelinu gestum að kostnaðarlausu.

Í hótelinu eru þrír veitingastaðir. Sjávarréttastaðurinn Sea Grill státar af tveimur Michelin-stjörnum, morgunverðarhlaðborðið á PebbleWood Corner er ómótstæðilegt og þar að auki ókeypis fyrir börn yngri en 12 ára og á Atrium er áherslan lögð á eftirlætisrétti Belga borna fram í afslöppuðu andrúmslofti.
Þeir sem hafa áhuga á að lyfta lóðum og hlaupa á brettum frekar en eftir götum borgarinnar geta það í líkamsræktaraðstöðunni í hótelinu sem er vel búin tækjum. Ekki er verra að geta svo slakað vel á eftir æfinguna í gufubaði.

Gestamóttakan er einstaklega glæsileg, þar er hátt til lofts og glerþak yfir efstu hæð í art deco stíl. Boðið er upp á síðbúna útskráningu, eftir pöntun. Þar að auki er boðið upp á afar hentuga hraðþvottaþjónustu þar sem þvotti sem afhentur er fyrir kl. 20 er skilað þremur tímum síðar.

Radisson Collection Grand Place eða Radisson Royal Blue er á frábærum stað, rétt við jaðar gamla bæjarins í Brussel. Aðalverslunarhverfið er í 5 mínútna göngufjarlægð og því er stutt í verslanir og veitingastaði auk þess sem auðvelt er að komast með almenningssamgöngum nokkurn veginn hvert á land sem er.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 15 km
  • Miðbær: 5 min að gamla borgarhlutanum
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og allt um kring

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Lyfta
  • Nettenging
  • Líkamsrækt: Með gufubaði

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun