fbpx Real Parque | Vita

Real Parque
4 stars

Vefsíða hótels

Real Parque Hotel er klassískt og nútímalegt, meðalstórt hótel í hjarta borgarinnar. Andrúmsloftið á hótelinu er létt og vinalegt og matur þykir góður. Um hálftíma gangur niður að sjó og 300 metrar að næstu neðanjarðarlestarstöð.

Á hótelinu eru 153 hljóðeinangruð herbergi sem skiptast í tveggja til þriggja manna herbergi og fjölskyldusvítur. Herbergin eru rúmgóð og hönnun þeirra björt og klassísk en veggir eru ljósmálaðir og innréttingar í brúnum og grænum tónum sem taka mið af umhverfi hótelsins. Herbergin eru notaleg og gólfum eru teppi. Sumum þeirra fylgja svalir eða verönd. Í öllum herbergjum er loftkæling, frítt internet, sjónvarp, sími, skrifborð, öryggishólf og míníbar. Baðherbergi eru flísalögð og þar eru baðkar með sturtu, hárþurrka og helstu snyrtivörur.

Á hótelinu er veitingastaður þar sem gott er að byrja daginn með heilnæmum og bragðgóðum morgunverði. Á daginn og kvöldin er hægt að panta fjölbreytta rétti og njóta alls þess sem portúgölsk matargerð býður upp á, í rólegu umhverfi. Einnig er hægt að láta senda mat upp á herbergið. Á hótelinu er einnig kaffihús og sportbar þar sem boðið er upp á úrval drykkja, tapas og létta rétti og íþróttaviðburðir eru sýndir á sjónvarpsskjám.

Frá hótelinu er stutt í allt það helsta og neðanjarðarlest og aðrar samgöngur eru í næsta nágrenni. Í þessari áhugaverðu og leyndardómsfullu borg eru sögu- og menningarminjar aldrei langt undan og það er yndislegt að ganga um miðbæinn og njóta þess að skoða byggingarstílinn, setjast inn á kaffihús eða versla. Real Parque hótelið er hentugt fyrir fjölbreytta hópa ferðamanna – hvort sem um er að ræða einstaklinga, fjölskyldur eða minni hópa og hvert sem tilefni ferðarinnar er.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 7 km
  • Miðbær: Um 20 mín gangur

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Hárþurrka
  • Herbergi

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun