fbpx Relaxia Lanzasur club, Playa Blanca | Vita

Relaxia Lanzasur club, Playa Blanca
3 stars

Vefsíða hótels

Relaxia Lanzasur club er einstakt hótel með smáhýsum. Æðislegur hótelgarður, góð þjónusta og stutt á Flamingo ströndina í Playa Blanca.

Á hótelinu eru 230 smáhýsi (e. bungalows) í fallegu og grónu umhverfi. Smáhýsin eru björt og snyrtileg með nútímalegum innréttingum og flísar eru á gólfum. Smáhýsin hafa eitt svefnherbergi, stofu með litlu eldhúsi og litla einkaverönd. Í þeim öllum er loftkæling, frítt internet og sjónvarp með gervihnattastöðvum, ísskápur og örbylgjuofn. Baðherbergi eru flísalögð og þar eru baðkar og sturta, hárþurrka og valdar snyrtivörur.

Á hótelinu er veitingastaður þar sem fjölbreyttir réttir eru bornir fram af girnilegu hlaðborði en mismunandi er hverju sinni hvert þemað er. Sérstakir réttir eru fyrir börn, veitingastaðurinn er loftkældur og hentar vel fyrir alla fjölskylduna. Í hótelgarðinum er snarlbar þar sem hægt er að njóta svalandi drykkja og fá sér eitthvað snarl. Einnig er bar í anddyrinu en þar er dansgólf og oft settar upp sýningar eða flutt lifandi tónlist. 

Hótelgarðurinn er stór og gróinn. Þar eru góðar sundlaugar og nóg pláss til að slaka á eða leika sér í sólinni. Aðstaða til að liggja í sólbaði er góð, sólbekkir og sólhlífar.
Leikvöllur fyrir börnin er í hótelgarðinum og vel útbúið leikjaherbergi. Krakkaklúbbur er starfræktur á hótelinu og skemmtanateymið sér um börnin á meðan þú slakar á. Í næsta nágrenni við hótelið er vatnsrennibrautagarðurinn Aqualava sem er í eigu sömu aðila og hótelið. Aðgangur er innifalinn fyrir gesti hótelsins. Þar getur öll fjölskyldan skemmt sér vel en þar eru rennibrautir, öldulaug, letifljót og margt fleira. 

Líkamsræktarstöð er á hótelinu og einnig er boðið upp á opna hóptíma svo það er auðvelt að halda sér í formi í fríinu. Einnig er þar heilsulind þar sem hægt er að panta fjölbreyttar meðferðir fyrir andlit og líkama. 

Relaxia Lanzasur club er staðsett á góðum stað á suðurhluta Lanzarote með útsýni til Fuerteventura. Hótelið hentar vel fyrir ólíka ferðamenn t.d. fjölskyldur og pör enda hefur það allt sem þarf fyrir gott frí í sólinni og stutt labb er í fjörið á ströndinni.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 30 km
  • Strönd: 200 m í Flamingo ströndina
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Barnaleiksvæði
  • Gestamóttaka
  • Íbúðir
  • Líkamsrækt
  • Nettenging: Gegn gjaldi

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Loftkæling
  • Verönd/svalir
  • Öryggishólf: Gegn gjaldi

Fæði

  • Allt innifalið

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun