fbpx Riad Tamarrakecht | Vita

Riad Tamarrakecht
4 stars

Vefsíða hótels

Riad Tamarrakecht er lítið og heillandi fjölskyldurekið hótel á frábærum stað í miðbæ Marrakech með útsýni til Atlasfjallgarðsins.

Á hótelinu eru einungis 10 herbergi sem skiptast í tveggja manna herbergi og svítur. Herbergin eru heillandi hvert á sinn hátt en þau eru öll rúmgóð og stílhrein. Marokkóskt yfirbragð er á hönnuninni en veggir eru ljósmálaðir og litagleðin kemur fram í fallegum mynstrum og flísum. Á gólfum eru flísar eða teppi. Í öllum herbergjum er loftkæling, míníbar, frítt internet, öryggishólf. Baðherbergin eru flísalögð en þar er sturta, hárþurrka og helstu snyrtivörur. 

Á hótelinu er hægt að fá morgunmat á hverjum degi og boðið er upp á hefðbundið marokkóskt bakkelsi og heimagerðan krapís. Í borðsalnum er boðið upp á hefðbundna marokkóska rétti. Þjónustan á hótelinu er persónuleg og það er jafnvel hægt að óska eftir að fá kennslu í marokkóskri eldamennsku. Hægt er að sitja uppi á þakinu og njóta sólarinnar og útsýnisins.

Þar sem hótelið er svo lítið er það frábært fyrir fjölbreytta hópa ferðamanna. Það er stutt frá hótelinu á flugvöllinn og næsti golfvöllur er aðeins í um 6 km. fjarlægð. Þeir sem vilja slaka á geta gert það við sundlaugina, á veröndinni eða innandyra. Þeir sem vilja skoða sig um í borginni þurfa ekki að leita lengi að sögulegum eða menningarlegum minjum. Verslanir eru í næsta nágrenni við hótelið og einnig getur hótelið séð um milligöngu þegar kemur að því að bóka skoðunarferðir um svæðið. Jafnframt getur verið skemmtilegt að leigja hjól og fara í sína eigin skoðunarferð.

Riad Tamarrakecht hentar öllum sem hafa áhuga á að sjá hinn sanna hluta Marrakech. Staðsetningin er frábær í rólegum og heillandi hluta borgarinnar en þó er það í miðbænum svo allt það helsta er í göngufjarlægð.
 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 6 km
  • Veitingastaðir: Allt um kring
  • Miðbær: Í miðbæ Marrakesh

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Nettenging

Vistarverur

  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Verönd/svalir
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun