fbpx Rosen Inn at Pointe, Orlando | Vita

Rosen Inn at Pointe, Orlando
2 stars

Vefsíða hótels

Mjög þægilegt hótel á góðum stað við International Drive og því í göngufæri við fjölda verslana og veitingastaða. Sundlaugar og veitingastaðir á hótelinu. Ókeypis skutla er að Orlando International Premium Outlet verslunarmiðstöðinni og skemmtigarðinum Universal Orlando Resort. Auðvelt er að komast með almenningssamgöngum eða bíl að SeaWorld, Aquatica og Walt Disney World. Sundlaug og veitingastaðir á hótelinu.

Í hótelinu eru 1020 rúmgóð herbergi, með tveimur tvíbreiðum rúmum, ætluð allt að fjórum einstaklingum. Innréttingar eru klassískar, í dökkum við og hlýlegum litum. Teppi eru á gólfum. Á öllum herbergjum er lítill ísskápur, örbylgjuofn, kaffivél, straujárn og strauborð og öryggishólf sem rúmar fartölvu auk loftkælingar, flatskjársjónvarps með gervihnattarásum og þráðlausrar nettengingar. Á baðherbergjum er baðker með sturtu, hárþurrka og baðvörur. 

Morgunverðarhlaðborð er á Plaza Garden alla daga og þar er einnig hlaðborð á kvöldin. Fyrir hvern fullorðinn sem borgar á kvöldverðarhlaðborðinu er ókeypis fyrir eitt barn 9 ára eða yngra. Smooth Java kaffihúsið býður upp á ekta Starbucks kaffidrykki, svalandi þeytinga og snarl. Í lok dags er tilvalið að setjast niður á Zebra's Sports Bar & Grille, snæða kvöldverð, hressa sig við með ljúffengum drykk og spreyta sig jafnvel í karókí. 

Hótelgarðurinn er gróinn og þar eru þrjár sundlaugar með sólbekkjum í kring og baðhandklæðum. Sérstakt leiksvæði er fyrir börnin. 

Í móttökunni er hraðbanki og þar er veitt aðstoð við miðakaup og ferðaupplýsingar og fleira. Lítil kjörbúð, Lite Bite, er opin allan sólarhringinn og þar fæst snarl, léttur fatnaður, gjafavara og helstu nauðsynjavörur. Gestir hafa aðgang að þvottavélum og þurrkurum gegn vægu gjaldi. 

Rosen Inn Pointe er þægilegt hótel á mjög góðum stað á International Drive. Verslanir og veitingastaðir eru í göngufæri og almenningssamgöngur sem stoppa fyrir utan hótelið ganga eftir öllu International Drive. Stutt er í skemmtigarða og verslunarmiðstöðvar. Vöktuð bílastæði eru við hótelið, gestum að kostnaðarlausu.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: Ca 20 min frá Orlando airport.

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Barnaleiksvæði
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Íbúðir
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Ísskápur
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður
  • Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun