fbpx Salgados Palace | Vita

Salgados Palace
5 stars

Vefsíða hótels

Í hótelinu eru 215 björt og rúmgóð 41 fm herbergi sem rúma tvo fullorðna eða tvo fullorðna og barn. Svíturnar eru 13, flestar 82 fm og rúma einnig tvo fullorðna eða tvo fullorðna og barn. Innréttingar eru nútímalegar og stílhreinar en jafnframt hlýlegar. Loftkæling er í öllum vistarverum, flatskjársjónvarp, sími, öryggishólf, smábar, hraðsuðuketill og þráðlaust netsamband. Á baðherbergjum er rúmgóð sturta, hárþurrka og baðvörur. Svalir eru við öll herbergi og er útsýni ýmist yfir sundlaugargarðinn, hafið eða golfvöllinn.

Tveir veitingastaðir eru í hótelinu. All in One býður upp á ríkulegt morgunverðarhlaðborð og er einnig opinn í hádeginu og á kvöldin. Á efstu hæðinni er veitingastaður og bar og þar er upplagt að njóta fegurðar sólsetursins í lok dags. Í hótelinu er einnig stór setustofubar með lifandi tónlist og við sundlaugina er snarl- og drykkjabarinn 19. holan.

Þrjár sundlaugar eru við hótelið, þar af ein sérstaklega ætluð börnunum. Sólbaðsaðstaða er góð, sólbekkir og sólhlífar. Krakkaklúbbur er starfræktur við hótelið. Það er ekki amalegt að slaka á í heilsulindinni sem er heilir 1.000 fermetrar. Þar er líkamsræktaraðstaða, öldulaug, nuddpottur, gufubað, þurrgufa og hvíldarhreiður. Boðið er upp á ýmsar vatnsmeðferðir, nudd og aðrar líkamsmeðferðir. Aldurstakmark í heilsulindina er 16 ára.

Móttakan er opin allan sólarhringinn, þar er farangursgeymsla, og boðið er upp á gjaldeyrisskipti, þvottaþjónustu og þurrhreinsun.

Salgado Palace er alveg við Salgado-golfvöllinn en er einnig með samning við tvo aðra velli. Gönguleiðir eru nálægt hótelinu, hestaleiga og ströndin er í 800 metra fjarlægð. Um korter tekur að keyra inn í miðbæ Albufeira.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 48 km
  • Strönd: 800 m
  • Veitingastaðir: Tveir á hóteli

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Barnaleiksvæði
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Verönd/svalir
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Hálft fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun