fbpx San Fermín, Benalmadena | Vita

San Fermín, Benalmadena
3 stars

Vefsíða hótels

San Fermín er snyrtilegt og vel staðsett hótel í Benalmadena. Stór og gróinn hótelgarður, stutt á ströndina og fjölbreytt mannlíf er að finna í hverfinu.

Á hótelinu eru 315 herbergi. Herbergin eru rúmgóð og hönnunin er björt og hlýleg. Stórir gluggar, veggir eru ljósmálaðir, húsgögn eru viðarlituð og parket er á gólfum. Í öllum herbergjum er loftkæling, sjónvarp með gervihnattastöðvum, internet, öryggishólf og sími. Hægt er að óska eftir míníbar. Svalir með útihúsgögnum fylgja öllum herbergjum. Baðherbergin eru flísalögð með ljósum flísum. Þar er baðkar með sturtu og hárþurrka. 

Á hótelinu er veitingastaður þar sem boðið er upp á veitingar af hlaðborði á morgnana, í hádeginu og á kvöldin. Þar sem í boði eru alþjóðlegir og hefðbundnir réttir frá svæðinu. Mögulegt er að fylgjast með matreiðslufólki að störfum í veitingasalnum. Í hótelgarðinum er snarlbar þar að sitja á veröndinni, fá sér kaffisopa, njóta léttra veitinga eða taka með sér svalandi drykk og njóta í sólinni. 

Hótelgarðurinn er stór og gróinn en þar er dásamlegt að slaka á og sleikja sólina. Í, en þarna er sundlaug og barnalaug þar sem hægt er að kæla sig. Á hótelinu er í boði ýmis afþreying yfir daginn og skemmtilegar sýningar í boði á kvöldinsem afþreyingarteymi sér um. Í hótelgarðinum er meðal annars barnaleikvöllur og íþróttavellir þar sem er til dæmis hægt að spila tennis, einnig er í boði borðtennis, billjarð og margt fleira. Krakkaklúbbur er starfræktur á hótelinu yfir sumartímann þar sem börnum gefst kostur á að gera eitthvað skemmtilegt saman. 

Í heildina er San Fermín gott hótel sem hentar vel þeim ferðamönnum sem vilja dvelja í Benalmadena. Hótelið er vel staðsett rétt við þorpið Arroyo de la Miel, en bæði er lestarstöðin og tívolíið í göngufjarlægð, ásamt fjölbreyttu úrvali af verslunum og veitingastöðum. Ströndin er í um það bil 10 mínútna göngufjarlægð en þar sem hótelið er staðsett í brekku gæti sú leið verið erfið fyrir þá sem eiga erfitt með gang. Gestamóttaka hótelsins er opin allan sólarhringinn þar sem  vingjarnlegt starfsfólk sér um  að hjálpa gestum að gera fríið ógleymanlegt.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 12 km
  • Strönd: 350 m á strönd
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og allt um kring

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Barnaleiksvæði
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Verönd/svalir
  • Hárþurrka
  • Loftkæling: og kynding

Fæði

  • Hálft fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun