fbpx Sandos Papagayo, Playa Blanca | Vita

Sandos Papagayo, Playa Blanca
4 stars

Vefsíða hótels

Flott hótel á yndislegum stað við Coloradas-ströndina austast á Playa Blanca. Stuttur göngutúr er að hinni gullfallegu Papagayo-strönd. Veitingastaðir, stórar sundlaugar, afþreying og slökun fyrir alla fjölskylduna.

Í hótelinu eru 39 fermetra Superior og Superior Side Sea View herbergi sem rúma þrjá fullorðna og barn, þar eru tvö rúm og svefnsófi. Fjölskylduherbergin eru 68 fermetrar, með setustofu sem hægt er að loka af. Innréttingar eru stílhreinar, í hvítum litum með gráum og appelsínugulum tónum. Alls staðar er loftkæling, flatskjársjónvarp með gervihnattarásum, aðstaða til að laga kaffi og te, hægt er að leigja öryggishólf og fyllt er á ísskáp gegn gjaldi. Á baðherbergjum baðker með sturtu, hárþurrka, snyrtispegill og baðvörur. Á svölum eru húsgögn og útsýni ýmist inn til landsins eða út á haf. 

Í Royal Elite-hluta hótelsins fylgir öryggishólf, baðsloppar og inniskór, strandhandklæði, espresso-vél, freyðivín og fullur smábar við komu, vatnsflöskur daglega og gengið er frá herbergjum fyrir nóttina. Sér veitingastaður er á svæðinu, setustofur og bar. 

Hlaðborðsveitingastaðurinn er opinn á morgnana, í hádeginu og á kvöldin. Matargerðin er alþjóðleg, með ítölsku ívafi og þar fást nýbakaðar pitsur. Á Fusion-veitingastaðnum er matargerðin asísk og mexíkósk í bland. Þar þarf að panta borð. Barirnir eru nokkrir, sumir inni á hótelinu, aðrir úti á verönd. Á sundlaugarbarnum fást léttir réttir og snarl. Á Græna barnum er lifandi tónlist og á Leikhúsbarnum fara fram sýningar og skemmtanir flest kvöld.

Í hótelgarðinum eru fimm góðar sundlaugar með sólbaðsaðstöðu allt um kring. Krakkaklúbbur er starfræktur með skipulagðri dagskrá sem er breytileg eftir dögum. Unglingarnir geta farið í Playstation, körfubolta, borðtennis, mínígolf og fleira. 

Heilsulindin er með gufubaði og nuddpottum þar sem hægt er að láta þreytuna líða úr sér. Boðið er upp á fegrunar- og slökunarmeðferðir, nudd og aðrar líkamsmeðferðir. Þá er þar einnig líkamsræktaraðstaða. 

Sólarhringsþjónusta er í gestamóttökunni. Bíla- og hjólaleiga er í hótelinu, þvotta- og þurrhreinsiþjónusta. Frí þráðlaus nettenging er á öllum sameiginlegum svæðum. 

 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 30 mín
  • Strönd: 600 m

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Barnaleiksvæði
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Nettenging: Frítt Wi-Fi

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Verönd/svalir
  • Minibar
  • Herbergi

Fæði

  • Allt innifalið
  • Hálft fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun