fbpx Seaclub Mediterranean Resort, Alcudia | Vita

Seaclub Mediterranean Resort, Alcudia
4 stars

Vefsíða hótels

Seaclub Mediterranean resort er staðsett í Alcudia ekki langt frá ströndinni eða í aðeins 8 mínútna göngufjarlægð. 

Hótelsvæðið samanstendur af íbúðarbyggingum þar sem er val um bæði stúdió íbúðir og íbúðir með einu eða tveimur svefnherbergjum. Íbúðirnar eru annars vegar á jarðhæð eða á annarri hæð og umlykur fallegur og gróðursæll garður allt svæðið.  Í garðinum er stór og falleg sundlaug, barnasundlaug og barnaleiksvæði. Sólbekki má finna á víð og dreifð út um allan garðinn.

Fjölbreytt úrval af afþreyingu er í boði frá morgni til kvölds, þar sem m.a. er hægt að fara í skotfimi, minigolf, blak, fótbolta, zumba og margt, margt fleira. Fyrir börnin er á staðnum leikherbergi, minidiskó og alla vegna afþreying í boði hjá barnaklúbbnum. Sérstakt svæði í garðinum er svo ætlað fullorðnum eingöngu og er hægt að sérpanta íbúðir sem fylgja því svæði, þar er áherslan lögð á rólegheit og afslappandi andrúmsloft. 

Veitingastaðir bæði úti og inni eru á staðnum sem bjóða upp á ýmis skonar góðgæti. Hægt er að velja um að vera án fæðis, eða með morgunmat, hálft fæði (morgunmatur og kvöldverður) eða allt innifalið eða alveg eins og hentar hverjum og einum.  Lítil matvöruverslun er einnig á svæðinu, þráðlaust internet og móttaka opin allan sólarhringinn.  

Íbúðirnar eru allar fallega búnar og innihalda öll þau helstu nútímaþægindi eins og sjónvarp, loftkælingu, öryggishólf, fullbúið baðherbergi með hárþurrku og helstu snyrtivörum og eldhúsaðstöðu sem inniheldur m.a. örbylgjuofn, helluborð, kaffivél, brauðrist og lítinn kæliskáp. Svalir eða verönd eru við allar íbúðirnar. 

Seaclub Mediterranean er frábær valkostur fyrir fjölskyldur og aðra sem vilja hafa nóg fyrir stafni í fríinu sínu.  Stutt er síðan að fara í miðbæinn í Alcudia en þar má finna m.a. fjölbreytt úrval veitingastaða og ýmsar verslanir. 

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 55,5 km.
  • Strönd: 8 mínútna göngufjarlægð
  • Miðbær: 850 m. - miðbærinn í Alcudia

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Barnaleiksvæði
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Ísskápur
  • Verönd/svalir
  • Hárþurrka

Fæði

  • Allt innifalið
  • Hálft fæði
  • Morgunverður
  • Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun