fbpx Seaside Los Jameos Playa, Puerto del Carmen | Vita

Seaside Los Jameos Playa, Puerto del Carmen
4 stars

Vefsíða hótels

Flott hótel á friðsælum stað á höfða við Los Pocillos sandströndina í Puerto del Carmen. Veitingastaðir, afþreying og slökun fyrir alla fjölskylduna.

Að utan er hótelbyggingin dæmigerð fyrir Kanaríeyjar en þegar inn er komið blasir við tilkomumikil gestamóttakan og setustofan í klassískum nýlendustíl, hátt til lofts og vítt til veggja og myndar eins konar garð inni í hótelinu, með pálmatrjám, stigum og svölum úr tré og timburbitum í lofti. Þar svífur andi listamannsins César Manrique yfir vötnum.

Í hótelinu eru 530 vistarverur af ýmsum gerðum, 26 fermetra tveggja til þriggja manna Twin, Superior og Deluxe herbergi, 37 fermetra Junior svítur sem rúma þrjá fullorðna eða tvo fullorðna og tvö börn, og fjórar stærri svítur sem rúma allt að sex manns. Fjölskylduherbergin eru 33 fermetrar og rúma þrjá fullorðna eða tvo fullorðna og tvö börn. Innréttingar eru í klassískum stíl, viður er ljós og áklæði í bláum og hvítum litum. Flísar eru á gólfum. Alls staðar er loftkæling, sími, sjónvarp með gervihnattarásum, aðstaða til að útbúa kaffi eða te og ókeypis þráðlaus nettenging. Öryggishólf og vörur í smábar eru gegn gjaldi. Á baðherbergjum er baðker með sturtu, hárþurrka og snyrtispegill. Svítum fylgir öryggishólf, espresso-vél, baðsloppar og inniskór.

Morgunverður, hádegis- og kvöldverður er af hlaðborði í veitingasal. Á kvöldin er mismunandi áhersla í matargerðinni, sem getur verið frá ýmsum heimshornum og hægt er að njóta matarins úti á veröndinni. Á Belingo-barnum lifandi tónlist, ljúffengir kokteilar og dansgólf. Á píanóbarnum er lifandi tónlist öll kvöld og sýnt er frá íþróttaviðburðum á stórum skjáum. Í sundlaugagarðinum eru tveir barir sem bjóða upp á létta rétti og ljúffenga drykki.

Hótelgarðurinn er einstaklega fallega hannaður, með pálmatrjám og öðrum suðrænum gróðri og góðri sólbaðsaðstöðu. Sundlaugarnar eru skemmtilegar, tvær eru fyrir börnin og sérstakt leiksvæði, mínídiskó, mínígolf og krakkaklúbbur. Þeir eldri geta leikið tennis, og fengið kennslu í því, strandblak eða nýtt sér líkamsræktaraðstöðuna. Starfsfólk aðstoðar við að skipuleggja hjóla- og gönguferðir, vatnasport og aðra afþreyingu. Svo er líka bara gott að slaka á í heilsulindinni, fara í gufubað eða látra dekra við sem með líkams- og fegrunarmeðferðum. 
Móttakan er opin allan sólarhringinn. Boðið er upp á þurrhreinsun og þvottahús með sjálfsafgreiðslu er aðgengilegt gestum.

Staðsetningin er frábær, við gyllta sandströndina. Það er allt til alls á hótelinu sjálfu en stutt er í veitingastaði og verslanir, vatnasport og aðra afþreyingu og stutt er að keyra að tveimur flottum golfvöllum.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 6 km
  • Strönd: Við Los Pocillos sandströndina
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Barnadagskrá
  • Barnaleiksvæði
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta: Efri hæðir aðgengilegar með lyftu

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Verönd/svalir
  • Minibar
  • Hárþurrka
  • Loftkæling: og kynding

Fæði

  • Allt innifalið
  • Hálft fæði
  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun