fbpx Sofitel Marrakesh Lounge & Spa Hotel | Vita

Sofitel Marrakesh Lounge & Spa Hotel
5 stars

Vefsíða hótels

Sofitel Marrakesh er nútímalegt fimm stjörnu lúxushótel í Hivernage, frábæru hverfi í Marrakesh. Þar er hægt að njóta marokkóskra lystisemda í fáguðu umhverfi á skemmtilegum stað í borginni með útsýni til Atlas fjalla.

Á hótelinu eru 139 herbergi sem skiptast í rúmgóð tveggja manna herbergi og svítur. Herbergin eru innréttuð í léttum marokkóskum stíl sem er um leið klassískur og heiðarlegur. Viðurinn er ekki langt undan en að öðru leyti eru herbergin ljósmáluð og létt tjöld gefa hönnuninni skemmtilega rómantískan blæ. Teppi eru á gólfum. Öll herbergin eru með loftkælingu, öryggishólfi, flatskjársjónvarpi með gervihnattarásum, fríu interneti, míníbar, Bose græjum og skrifborði. Einnig fylgja svalir öllum herbergjum. Teppi eru á gólfum. Baðherbergin eru marmaralögð og þar eru sturta og baðkar, hárþurrka, sloppur og fríar snyrtivörur. Hægt er að panta mat upp á herbergið. 

Fjórir veitingastaðir eru á hótelinu og eru þeir hver öðrum betri. Þar á meðal er franskur veitingastaður og auk þess er hægt að fá marokkóska rétti og snarl við sundlaugina. Morgunverður er í boði af hlaðborði. Fimm ólíkir barir eru á hótelinu svo hægt er að njóta ljúffengra drykkja í fallegu umhverfi. 

Hótelgarðurinn er afar fallegur en í honum eru tvær útisundlaugar og nóg af plássi og aðstöðu til sólbaðsiðkunar. Heilsulind er á hótelinu þar sem hægt er að synda í innisundlaug, fara í sánu, tyrkneskt bað og heitan pott. Einnig er hægt að panta sér nudd eða aðrar meðferðir. Á hótelinu er einnig líkamsræktaraðstaða sem og tennisvöllur. 

Sofitel Marrakesh hótelið er klassískt en nýtískulegt hótel á frábærum stað í fallegu umhverfi í úthverfi gamla bæjarins. Auðvelt er að komast á milli staða og stutt í golfið.
Hótelið hentar vel fyrir ferðamenn sem vilja vera í öruggu hverfi en þurfa einungis að fara stutta leið til að  upplifa menninguna

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 7 km
  • Miðbær: Úthverfi gamla bæjarsins.
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Barnaleiksvæði
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Verönd/svalir
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun