Solymar Gran Hotel The One, Calpe
Vefsíða hótels
Solymar Gran Hotel The One, Calpe sem áður hét Gran hotel Sol Y Mar er frábært hótel á besta stað í miðbæ Calpe, við Arenal ströndina. Hótelið er eingöngu fyrir 16 ára og eldri.
Herbergin eru rúmgóð og glæsileg. Í þeim er flatskjár, frítt þráðlaust internet, loftkæling og smábar. Gott hjólastólaaðgengi er á hótelinu.
Garðurinn er ekki stór en fallegur og með útsýni yfir hafið og Peñón de Ifach-klettinn. Gengið er beint niður á strönd.
Í heilsulindinni eru í boði fjöldinn allur af heilsu- og vellíðunarmeðferðum sem margar tengjast vatni. Líkamsræktin er stór og búin nýlegum og góðum tækjum, og einkaþjálfari er þér innan handar.
Á hótelinu eru veitingahúsin Anfora, með áherslu á sjávarrétti, og Abiss, sem er á efstu hæð hússins með dýrindis mat og frábært útsýni. Á kampavínsbarnum Le Champagneria geturðu valið milli 35 tegunda af kampavíni, cava (spænsku freyðivíni) og cava-kokkteilum.
Í um það bil 500 metra fjarlægð frá hótelinu stoppar strætó sem gengur til Benidorm fjórum sinnum á dag.
Hægt er að velja um morgunverð eða hálft fæði en hótelið er rómað fyrir frábær hlaðborð með gæða hráefni.
Fjarlægðir
- Frá flugvelli: 64 km
- Frá miðbæ: Í miðbæ Calpe
- Frá strönd: Við strönd
- Veitingastaðir: Allt í kring
Aðstaða
- Nettenging: Frítt þráðlaus nettenging er á sameiginlegum stöðum og á herbergjum
- Barnasundlaug
- Sundlaug
- Líkamsrækt
- Heilsulind
- Gestamóttaka
- Bar
- Veitingastaður
Vistarverur
- Herbergi
- Minibar
- Loftkæling
- Öryggishólf
- Sjónvarp
- Hárþurrka
Fæði
- Hálft fæði