fbpx Starhotel Majestic | Vita

Starhotel Majestic
4 stars

Vefsíða hótels

Mjög gott hótel á frábærum stað í miðborginni, á móti Porta Nuova lestarstöðinni. Helstu kennileiti eru í léttu göngufæri, líkt og verslunargötur, og almenningssamgöngur rétt við hótelið.

Í hótelinu er 161 herbergi og svítur, ætluð allt frá einum að fjórum einstaklingum. Innréttingar eru að hluta nýuppgerðar, hlýlegar og klassískar, í gulum og hvítum litum, viður er dökkur eða millibrúnn. Flísar eru á gólfum. Alls staðar er loftkæling og upphitun, flatskjársjónvarp með gervihnattarásum, öryggishólf, smábar og ókeypis þráðlaus nettenging. Á baðherbergi er baðker eða sturta, hárþurrka og baðvörur.

Morgunverðarhlaðborðið svignar undar alls kyns nýbökuðu kruðeríi, mjólkurvörum, ostum, eggjum og beikoni. Í hádeginu og á kvöldin er hægt að velja um dýrindis rétti af matseðli á veitingastaðnum Le Regine þar sem áherslan er á ferskt hráefni úr heimahéraði. Ekki sakar að líta upp þegar sest er til borðs á veitingastaðnum því að loftið er hreint listaverk, úr steindu gleri. Á setustofubarnum Il Circolo er boðið upp á létta rétti í hádeginu og að sjálfsögðu hið fínasta kaffi, kokteila og vín langt fram eftir kvöldi.
Líkamsræktaraðstaðan er ágæt og opin gestum hótelsins allan sólarhringinn.

Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn og þar er farangursgeymsla, þvotta-, þurrhreinsi- og strauþjónusta. 

Starhotel Majestic er mjög gott hótel á frábærum stað, á móti Porta Nuova lestarstöðinni í miðborginni. Konungshöllin og önnur helstu kennileiti borgarinnar eru í léttu göngufæri en þar að auki stoppa sporvagnar og strætó rétt við hótelið og því auðvelt að komast hvert á land sem er. Einungis tekur fimm mínútur að skjótast frá hótelinu á Garibali-verslunarstrætið með næsta vagni.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 20 km
  • Miðbær: Á móti Porta Nuova
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og allt um kring

Aðstaða

  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Herbergi
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun