fbpx Stefan Village, Agia Marina | Vita

Stefan Village, Agia Marina
4 stars

Vefsíða hótels

Stefan Village Hotel Apartments er skemmtilegt íbúðahótel á þessum sólríka áfangastað en hótelið er afar hentugt fyrir fjölskyldur. Þægindi eru í fyrirrúmi, stutt á ströndina og auðvelt að komast í allt það helsta í Chania.

Á hótelinu eru 160 íbúðir sem skiptast í stúdíóíbúðir og íbúðir með einu svefnherbergi. Stúdíóíbúðirnar henta fyrir 2-3 einstaklinga og stærri íbúðirnar fyrir 3-4 einstaklinga. Íbúðirnar eru bjartar, með ljósmáluðum veggjum og ljósum viðarhúsgögnum. Parket er á gólfum. Íbúðirnar eru allar með loftkælingu, interneti, síma, sjónvarpi með gervihnattastöðvum og öryggishólfi. Í öllum íbúðum er lítið eldhús með öllu því helsta sem þarf til að sjá sjálfur um mat eða snarl í fríinu. Baðherbergin eru snyrtileg, þau eru flísalögð og þar er sturta og baðkar, hárþurrka og helstu snyrtivörur.

Á hótelinu er morgunverður borinn fram af hlaðborði en einnig er á hótelinu veitingastaður sem býður upp á gómsæta Miðjarðarhafsrétti og alþjóðlega rétti í hádegis og kvöldverð svo hér ætti enginn að verða svangur. Bar/kaffihús er úti í hótelgarðinum og þar er hægt að byrja daginn á kaffibolla og snarli en færa sig svo yfir í eitthvað meira svalandi til að njóta við sundlaugina, til dæmis kokteil, bjór, gosglas eða jafnvel ís.

Hótelgarðurinn er stór og skemmtilega hannaður með sundlaugum, sólbekkjum og fallegum gróðri. Fjörugar vatnsrennibrautir eru í garðinum svo börn og fullorðnir geta leikið sér. Gestamóttaka hótelsins er opin allan sólarhringinn og þar er starfsfólk sem getur hjálpað við hvað sem kemur upp á. Lítið bókasafn er til staðar á hótelinu, tölvuleikir, leikjaherbergi, borðtennisborð og billjarðborð. Reglulega eru haldnir viðburðir og sýningar fyrir gestina og skemmtanir fyrir börn.

Í heildina hentar Stefan Village hótelið fyrir fjölbreytta hópa ferðamanna og ekki síst fyrir fjölskyldufólk sem vill slaka á í sólinni í umhverfi sem börn geta líka notið þess að leika sér í.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 40 mín
  • Strönd: 500 m

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Barnaleiksvæði
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Íbúðir
  • Nettenging: Frítt Wi-Fi á sameiginlegum svæðum

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Ísskápur
  • Verönd/svalir
  • Hárþurrka
  • Íbúðir

Fæði

  • Allt innifalið
  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun