fbpx Symphony of the Seas | Vita

Symphony of the Seas
5 stars

Vefsíða hótels

Symphony of the Seas er nýjasta og það allra stærsta í flotanum og fór í sína fyrstu ferð 31. Mars 2018. Symphony er  228000 tonn,361meter að lengd og 47meter að breidd.  Skipið er mikill ævintýraheimur. Í miðju skipinu er lystigarðinn "Central Park", "The Boardwak", sem er opið afturþilfar með líflegri stemmningu, klifurveggjum og aftast er hið ótrúlega vatnaleikhús þar sem dýfingameistarar og sundfólk sýnir listir á heimsmælikvarða. Göndugatan eða Grand Promenade er yndisleg gata með verslunum, kaffihúsi, pizzastað og börum. Frábær gata þar sem alltaf er líf og fjör. Í þessu ótrúlega skipi eru 25 veitingastaðir allt frá Pylsubar og í mjög fína veitingastaði, fyrir utan mikið af börum og öðrum skemmtistöðum. Skipið tekur allt að 6680 farþega og er með 2200 manns í áhöfn sem stjana við farþegana allan sólarhringinn. Ævintýralegt sundlaugarsvæðið með laugum, heitum pottum og rennibrautum auk þess rólegra sólaríum fremst á skipinu.
Klefar eru ýmist með tvíbreiðu rúmi eða tveimur rúmum, setkrók með sófa og skrifborði, sjónvarpi með flatskjá, ísskáp eða smábar - eftir vali, hárþurrku, snyrtiborði og öryggishólfi. Baðherbergi með sturtu og snyrtivörum. Herbergisþjónusta allan sólarhringinn.

Fjarlægðir

  • Veitingastaðir: Um borð

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Aðgengi fyrir fatlaða
  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Barnaleiksvæði
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Herbergi
  • Handklæði fyrir hótelgarð
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging
  • Herbergi: Klefar með svölum eru á efri þilförum frá 6. - 12. og snúa út á haf og klefar án svala á 3. - 11. þilfari.

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Verönd/svalir
  • Minibar
  • Hárþurrka
  • Herbergi
  • Verönd/svalir: í ákveðnum verðflokki, sjá verð og innifalið

Fæði

  • Fullt fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun