fbpx THB Tropical Island, Playa Blanca | Vita

THB Tropical Island, Playa Blanca
4 stars

Vefsíða hótels

THB Tropical Island íbúðahótelið er úrvalsgott hótel á rólegum og fallegum stað í Playa Blanca. Frábært fyrir fjölskyldur og aðra hópa þar sem hér er hugsað fyrir þörfum allra.

Á hótelinu eru 414 íbúðir sem ýmist eru stakar eða samliggjandi og henta því fyrir hópa af ýmsum stærðum.

Íbúðirnar eru afar snyrtilegar bjartar og rúmgóðar. Í öllum íbúðum er loftkæling og frítt internet, sjónvarp með gervihnattastöðvum, öryggishólf og sími. Í íbúðunum er setustofa, lítið eldhús með ísskáp, örbylgjuofni, kaffivél og katli, svefnherbergi og verönd eða svalir með útihúsgögnum. Baðherbergin eru flísalögð og þar eru baðkar með sturtu, hárþurrka og allar helstu snyrtivörur. 

Á hótelinu er veitingastaður þar sem boðið er upp á allar máltíðir af hlaðborði en einnig er veitingastaður þar sem er hægt að panta af matseðli. Á hótelinu eru í heildina fjórir barir þar sem hægt er að fá sér svalandi drykki, kokteila og snarl. Lítil verslun er einnig á staðnum.

Hótelgarðurinn er gríðarstór með fjölmörgum skemmtilegum sundlaugum. Garðurinn er gróinn og nóg af pláss til að slaka á eða skemmta sér í sólinni. Hluti garðsins er eingöngu ætlaður fyrir fullorðna en þar er sundlaug, kokteilabar og slökunarsvæði. 

Hér er gjörsamlega allt í boði svo gestir þyrftu í raun aldrei að fara út af hótelinu. Hér er fótboltasvæði, aðstaða til að spila tennis, blak og borðtennis, billjarð, pílukast og fótboltaspil. Vatnsleiksvæði fyrir börnin, vatnagarður, krakkaklúbbur, ýmis leiksvæði og fjölbreytt dagskrá en einnig geta börn skráð sig í fótboltabúðir og fengið leiðsögn og þjálfun í fótbolta. Hægt er að leigja hjól á hótelinu eða læra að kafa í sundlauginni.

Líkamsræktaraðstaða er á hótelinu og heilsulind með tyrknesku baði, sánu og nuddpotti auk fjölmargra meðferða sem eru í boði. Hingað koma margir til að dvelja á meðan þeir æfa fyrir ólíka íþróttaviðburði t.d. hjólakeppnir eða þríþraut. Afþreying og skemmtidagskrá er í boði allan daginn fyrir gesti á öllum aldri og sýningar og skemmtanir á kvöldin. 

Í heildina er um að ræða hótel sem einfaldlega er með allt til alls. Staðsetning hótelsins er frábær, stutt labb á næstu strönd en einnig er boðið upp á skutl á ströndina. Auðvelt að komast í allt það helsta sem hægt er að skoða á þessari fallegu eldfjallaeyju.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 28 km
  • Strönd: Um 1 km á Playa Dorada
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Íbúðir
  • Líkamsrækt
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Kaffivél
  • Ísskápur
  • Verönd/svalir
  • Hárþurrka

Fæði

  • Allt innifalið
  • Hálft fæði
  • Morgunverður
  • Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun