fbpx Tivoli Avani

Tivoli Avani
4 stars

Vefsíða hótels

Tivoli Avani er nýuppgert og fallegt 4 stjörnu hótel í miðborg Lissabon, steinsnar frá breiðgötunni Avenida Liberdade. Þar er iðandi mannlíf, kaffihús, verslanir og götuveitingahús.

Öll herbergi á hótelinu eru nýlega uppgerð í einföldum, þægilegum og nútímalegum stíl og rúmgóð. Þau eru búin öllum nútímaþægindum eins og þráðlausri nettengingu, sjónvarpi, útvarpi með iPod-vöggu, síma, hægindastól, öryggishólfi, espresso-kaffivél, hárþurrku, smábar og loftkælingu. Sum herbergi eru með svölum.

Á hótelinu eru tveir veitingastaðir. Olivier Avenida er alþjóðlegur staður sem tekur 65 manns í sæti og matseðillinn er fullur af nýjungum. Yakuza er sushi- og sashimi-staður, rekinn af Olivier-veitingahúsinu og tekur 34 í sæti. Með fyrirvara er hægt að laga matseðil að smekk hópa sem vanir eru Miðjarðarhafs-, indverskum eða öðrum mat frá tilteknum heimshlutum.

Fundaraðstaða er á hótelinu og systurhótelinu Tivoli Lisboa við hliðina og hentar vel fyrir fundi þar sem friðar og næðis er krafist. Þráðlaust netsamband er í fundarherbergjum og á opnum svæðum. Aðgangur er að frístundaaðstöðu, tveimur veitingastöðum og tveimur börum er á systurhótelinu. Af "SKY" barnum á efstu hæð Tivoli Lisboa er fallegt útsýni yfir borgina.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 7 km
  • Miðbær: Í miðbænum
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging: Þráðlaus nettenging er gegn gjaldi á sameiginlegum svæðum og í herbergjum 15 EUR sólarhringurinn

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Kaffivél
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Morgunverður

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun