Tryp by Wyndham Abu Dhabi
Vefsíða hótels
Tryp by Wyndham Abu Dhabi er fjögurra stjörnu hótel með frábærri staðsetningu í hjarta höfuðborgarinnar, það er í göngufæri við helstu verslunarmiðstöðvar, skemmtilega garða og óspillta strönd.
Hótelið tilheyrir hótelkeðjunni Wyndham Worldwide og er það fyrsta sem opnar í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Hótelið býður m.a. upp á stórfenglegt borgar- og sjávarútsýni, kaffihús, tvo veitingastaði þar sem hægt er að gæða sér á bæði þjóðlegum og alþjóðlegum réttum. Útisundlaug er uppi á þaki hótelsins ásamt lítilli sólbaðsaðstöðu og sundlaugarbar. Móttaka er opin allan sólarhringinn, herbergisþjónusta er í boði fyrir hótelgesti og hægt að fá ýmsar snyrtimeðferðir í heilsulind hótelsins, en þar er einnig líkamsræktaraðstaða
Herbergin eru samtals 146, öll eru þau smekklega innréttuð og bjóða uppi á þráðlaust internet, sjónvarp, síma, öryggishólf, minibar og hárþurrku, svo að dæmi séu tekin. Á Tryp hotel by Wyndham Abu Dhabi er hægt að lofa eftirminnilegri og hressandi dvöl þar sem reynslumikið gestrisið starfsfólk mun sjá um að gera ferðina ógleymanlega.
Ferðamannaskattur í Sameinuðu arabísku furstadæmunum er ekki innifalinn í verði ferðarinnar. Hann greiðist á hóteli við brottför. Skatturinn er 5 dirhams á mann á nótt, á hótel Tryp by Wyndham Abu Dhabi.
Fjarlægðir
- Flugvöllur: 2,5 tímar
Aðstaða
- Veitingastaður
- Bar
- Gestamóttaka
- Heilsulind
- Herbergi
- Líkamsrækt
- Lyfta
- Nettenging
Vistarverur
- Sjónvarp
- Öryggishólf
- Loftkæling
- Kaffivél
- Minibar
- Hárþurrka
- Herbergi
Fæði
- Morgunverður