fbpx Villa de Laredo, Fuengirola | Vita

Villa de Laredo, Fuengirola
3 stars

Vefsíða hótels

Villa de Laredo hótelið er huggulegt hótel, staðsett við göngugötuna í Fuengirola, aðeins í nokkurra mínútna göngufjarlægð frá lestarstöðinni og dýragarðinum.

Á hótelinu eru 50 herbergi sem skiptast í einstaklingsherbergi og tveggja manna herbergi. Herbergin eru staðsett í tveimur byggingum, önnur þeirra er með útsýni út á Miðjarðarhafið en hin ekki. Herbergin eru rúmgóð og snyrtileg, litrík og hlýleg. Veggir eru hvítmálaðir en bláir tónar einkenna húsgögn og hönnun sem er í Miðjarðarhafsstíl. Í herbergjunum eru stórir gluggar sem hleypa birtunni vel inn í rýmið. Í öllum herbergjum er loftkæling, frítt internet, sjónvarp, míníbar, skrifborð, öryggishólf og svalir eða verönd. Baðherbergin eru flísalögð og snyrtileg með sturtu, hárþurrku og helstu snyrtivörum. 
 
Á hótelinu er góður, loftkældur veitingastaður þar sem hægt er að bragða á ljúffengum innlendum réttum sem framreiddir eru á hefðbundinn hátt. Þetta er fullkominn staður til að setjast niður með fjölskyldunni. Á hótelinu er einnig afslappaður bar með verönd þar sem gott er að setjast niður og slaka á yfir svalandi drykk. Í grennd við hótelið eru fjölmargir veitingastaðir og barir sem skemmtilegt er að prófa, til dæmis er svæðið þekkt fyrir góða rækjurétti.

Á þaki hótelsins er sundlaug og sólbaðsaðstaða með góðum sólbekkjum. Þar er hægt að liggja og sleikja sólina og njóta stórbrotins útsýnis yfir höfnina og út á Miðjarðarhafið. Í grennd við hótelið er fjölbreytt afþreying í boði. Ströndin er í næsta nágrenni með öllu sínu fjöri, vatnaíþróttum og afslöppun.
 
Í heildina er Villa de Laredo hótelið góður kostur fyrir fjölbreytta hópa ferðamanna. Gestamóttaka hótelsins er opin allan sólarhringinn og þar er starfsfólk tilbúið að aðstoða gesti gera fríið hið ánægjulegasta. Frá hótelinu er stutt að fara á marga af vinsælustu viðkomustöðum í Fuengirola.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 24 km
  • Strönd: 50 m í Fuengirola strönd
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Gestamóttaka
  • Lyfta
  • Nettenging

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Verönd/svalir
  • Hárþurrka
  • Herbergi
  • Loftkæling: og kynding
  • Ísskápur: Lítill

Fæði

  • Morgunverður
  • Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun