fbpx Zafiro Palmanova & Spa | Vita

Zafiro Palmanova & Spa
4 stars

Vefsíða hótels

Glæsilegt og vel staðsett íbúðahótel í Palma Nova, skammt frá flottum golfvöllum og góðri strönd og aðeins fáeina kílómetra vestur af höfuðborginni Palma.

Zafiro Palmanova er nýlega uppgert. Íbúðir eru 198, rúmgóðar, ýmist með einu eða tveimur svefnherbergjum og rúma fjóra til sex. Allar eru þær loftkældar og búnar sjónvarpi, síma og öryggishólfi (gegn gjaldi). Ókeypis þráðlaus netaðgangur er í íbúðunum. Í eldhúskrók er helluborð, ísskápur, örbylgjuofn, kaffivél, ketill og brauðrist auk allra nauðsynlegra eldhúsáhalda og borðbúnaðar. Hárþurrka er á baðherbergi og svalir eða verönd eru á öllum íbúðum.
Barnarúm kostar 4 evrur og gjaldið er rukkað á staðnum. 

Einnig er La Palapa-sundlaugarbar við hótelið þar sem boðið er upp á drykki, snarl og ís. Babalú-kaffibarinn er þarna líka og þar er tilvalið a slaka á yfir hressandi drykk.

Ekki vantar sundlaugarnar. Stór útisundlaug er við hótelið, umkringd sólbaðssvæði með bekkjum og sólhlífum. Afmarkað svæði er fyrir átján ára og eldri með þægilegum bali-bekkjum fyrir rómantísk pör. Sérstök sjóræningjalaug með skipi og rennibrautum fyrir börnin er í garðinum. Svo má heldur ekki gleyma innilauginni. Barnaklúbbur er starfræktur á hverjum degi.

Heilsulind með sána, líkamsræktaraðstaða og snyrtistofa eru í hótelinu.

Púttflöt, boltavöll, blakvöll, borðtennis- og billjardborð er að finna á svæðinu. Hægt er að leigja hjól í móttökunni. Golfvellir eru skammt undan og ekki þarf að leita langt til að komast í froskköfun, hellaskoðun, kajakróður, siglingar, útreiðar, vatnsskemmtigarða og fleira.

Höfuðborgin Palma er í aksturs fjarlægð. Gamli borgarhlutinn er forvitnilegur með áhugaverðum byggingum, þröngum götum og öllum þeim sjarma sem einkennir gamla bæi við Miðjarðarhafið. Góðar verslanir eru í borginni, veitinga- og kaffihúsa.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 28 km
  • Miðbær: 15 km til Palma
  • Strönd: 200 m
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í næsta nágrenni

Aðstaða

  • Sundlaug
  • Skemmtidagskrá
  • Veitingastaður
  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Barnaleiksvæði
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Íbúðir
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Nettenging: Þráðlaus nettenging án endurgjalds er á sameiginlegum svæðum
  • Íbúðir: Með einu eða tveimur svefnherbergjum og rúma fjóra til sex

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Loftkæling
  • Verönd/svalir
  • Hárþurrka
  • Öryggishólf: Gegn gjaldi, 16 Evrur á viku

Fæði

  • Allt innifalið
  • Hálft fæði
  • Morgunverður
  • Án fæðis

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun