fbpx Platja d'Aro | Vita

Platja d'Aro

Hjarta Costa Brava

Bókaðu þína ferð
Báðar leiðir
Aðra leið

Myndagallerí

Nýr áfangastaður Icelandair VITA - Platja d'Aro á Costa Brava!

Í Platja d'Aro er ekki fararstjóri á vegum Icelandair VITA og eru farþegar því á eigin vegum.

Platja d´Aro er hjarta Costa Brava. Costa Brava eða "villta ströndin" er nátturuperla sem margir Íslendingar eiga enn eftir að upplifa.

Platja d´Aro strandbærinn býður upp á allt sem þarf fyrir gott frí: 2 km standlengju og jafnlanga verslunargötu með öllum helstu verslunum eins og Mango, Bershka, Stradivarius, Massimo Dutti, Kiko svo eitthvað sé nefnt, veitingastöðum, börum og diskótekum. Bærinn er aðallega heimsóttur af Spánverjum, Frökkum, Þjóðverjum, Belgum og Hollendingum sem flestir koma keyrandi yfir landamærin. Það eru um 120 km frá flugvellinum í Barcelona til Platja d’Aro og ekið er í norðurátt þaðan.  Aksturinn tekur u.þ.b. klukkustund og 20 mínútur.

Ýmsa skemmtilega afþreyingu má finna í Platja d’Aro fyrir utan að njóta sólarinnar og strandanna, í bænum er líka vatnsgarðurinn "Aquadiver Parc" þar sem finna má fjölbreyttar sundlaugar og rennibrautir af öllum stærðum og gerðum. Um 10 mínútna akstur er þangað frá miðbænum.

Fyrir þá sem vilja hreyfa sig aðeins mælum við með að ganga strandstíginn austur af Platja d´Aro ströndinni. Þar er hægt að skoða um 9 strandvíkur áður en komið er í strandbæinn Sant Antonio de Calonge.

Fyrir tónlistaráhugafólk bendum við á ókeypis Jazz tónleika á ströndinni, vikulega í júní, júlí og ágúst, yfirleitt á fimmtudagskvöldum.

Við mælum eindregið með að þeir sem hyggjast heimsækja Costa Brava séu með bílaleigubíl amk hluta af tímanum og skoði bæði nærliggjandi standþorp eins og Llafranc, Calella de Palafrugell og Tamariu sem og sögufræg þorp inn í landi eins og Pals, Begur og Peratallada. Dalí safnið í Figueres er einnig í seilingarfjarlægð (73 km). Eftir safnið er tilvalið að fara í vínsmökkun í Perelada eða áfram til Cadaqués og Port Lligat (strandbæir) þar sem Dalí bjó. 

Sjá nánari ferðalýsingu
Bókaðu þína ferð
Báðar leiðir
Aðra leið
  • Hagnýtar upplýsingar

Gististaðir

Kort

Sjá alla gististaði
  • Veðrið

  • Flugtími

    Kef BCN

    4,5

    Morgunflug

  • Gjaldmiðill

    EUR

    Evra

    Gengi

Sjá Kortasýn Sjá gististaði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun