fbpx Gististaður | Vita

CS Vila das Lagoas, Salgados
4 stars

Vefsíða hótels

Glæsilegar íbúðir með tveimur eða þremur svefnherbergjum fyrir 2 til 6 gesti. Vila das Lagoas er vel búið og glæsilegt hótel við Salgados ströndina í Algarve héraði, rétt við bæinn Guia og í aðeins 10-15 mín aksturfjarlægð frá miðbæ Albufeira. Hótelið og umhverfi þess er paradís fyrir fjölskyldur eða vinahópa.

Villa da Lagoas er hluti af CS hotels keðjunni. Fimm CS hótel eru við Salgados ströndina sem er einstaklega falleg, breið og hrein sandströnd. Hótelin mynda lítið þorp. Innan svæðisins eru einnig matvöruverslun, veitingastaður, tveir barir, hraðbanki, matvörumarkaður og nokkrar smáverslanir. Yfir sumartímann bætast við tveir veitingastaðir á ströndinni. Í þjónustubyggingunni er stór líkamsræktarstöð með tækjasal, hóptímum og 25 metra innilaug auk heilsulindar. Barnaklúbbur er starfræktur fyrir hótelin yfir sumartímann.

Auðvelt er að komast til Albufeira með því að kaupa sér miða í „hop on- hop of" rútu eða taka leigubíl.

Við hótelið eru 3 sundlaugar, 1 barnalaug og 2 dýpri.

Íbúðinar eru sérlega rúmgóðar, nýtískulegar og bjartar. Gólfsíðir gluggar sem opnast út á stórar svalir setja sérstakan svip á vistaverurnar. Allur aðbúnaður er fyrsta flokks og falleg húsgögn í stofu og borðstofu. Eldhús er búið öllum nútíma þægindum: stórum ísskáp með frysti, örbylgjuofni, katli, kaffivél og brauðrist. Baðherbergi eru rúmgóð og falleg með baðkari/sturtu og hárþurrku. Í öllum íbúðum/húsum eru þvottavél með þurrkara og straujárn fylgir.

Vila das Lagoas útvegar gestum sínum sundlaugar-, strandhandklæði endurgjaldslaust hvort sem dvalið er í íbúðum eða raðhúsum.

Fjarlægðir

  • Flugvöllur: 50 km
  • Miðbær: 9 km
  • Strönd: 400 m

Aðstaða

  • Bar
  • Barnadagskrá
  • Barnasundlaug
  • Gestamóttaka
  • Heilsulind
  • Íbúðir
  • Líkamsrækt
  • Lyfta
  • Skemmtidagskrá
  • Sundlaug
  • Veitingastaður
  • Nettenging: Þráðlaus nettenging án endurgjalds á sameiginlegum svæðum
  • Handklæði fyrir hótelgarð: Endurgjaldslaust
  • Íbúðir: með 2 eða 3 svefnherbergjum taka allt að 6

Vistarverur

  • Hárþurrka
  • Verönd/svalir
  • Ísskápur
  • Kaffivél
  • Loftkæling
  • Sjónvarp

Fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun