fbpx Royal Hideaway Corales Beach, La Caleta | Vita

Royal Hideaway Corales Beach, La Caleta
5 stars

Vefsíða hótels
  • pin Created with Sketch.

Fallegt útsýni, glæsilegur arkitektúr og lúxus einkenna þetta hótel. Hótelið er vel staðsett í La Caleta. Stutt er á ströndina og úrval veitingastaða í göngufæri.

Royal Hideaway Corales Beach er lúxus hótel með svítur sem rúma einn til tvo. Hótelið er hannað á stórkostlegan hátt til að líkja eftir stóru skemmtiferðaskipi og er aðeins fyrir 18 ára og eldri og er því tilvalið fyrir pör eða brúðhjón sem vilja lúxus. Svíturnar eru nýtískulegar og allar með glæsilegu útsýni yfir sjóinn.

Hótelið býður upp á fjölbreytt úrval af veitingastöðum, þar á meðal glæsilegt morgunverðarhlaðborð, A la carte veitingastaðinn San Hó sem sérhæfir sig í japanskri matargerð "Nikkey Fusion", 1* Michelin veitingastaðinn The Corner of Juan Carlos, ítalska veitingastaðinn Il Bocconcino og alþjóðlega staðinn Starfish. Á hótelinu er einnig hefðbundin ítölsk ísbúð. Á þaki hótelsins er flottur bar með geggjuðu útsýni yfir sjóinn þar sem dásamlegt er að slaka á og spjalla með góðan kokteil við hönd. Í hótelgarðinum eru tvær sundlaugar og frábær sólbaðsaðstaða ásamt snarlbar. Heilsulind hótelsins býður upp á mikið úrval af nuddi og meðferðum. Persónulegur aðstoðarmaður heilsulindarinnar er til staðar. Heilsulindin státar af sjö lúxus heilsulindarsvítum fyrir fegurðar- og vellíðunarmeðferðir. Einnig er dásamlegt að slaka á nuddpotti, eimbaði, gufubaði eða bara njóta þess að svamla um í saltvatnslauginni. Góð afþreying er á hótelinu s.s. lifandi tónlist, skemmtidagskrá á kvöldin, tímabundin gallerí svo eitthvað sé nefnt. Einnig er hægt að bóka í allskonar afþreyingu gegn gjaldi. Golfvöllur er í 3km fjarlægð frá hótelinu.

Fjarlægðir

  • Frá flugvelli: 23 km
  • Frá strönd: 50m Playa de La Enramada
  • Veitingastaðir: 700m

Aðstaða

  • Þráðlaust net
  • Handklæði fyrir hótelgarð
  • Sundlaug
  • Líkamsrækt
  • Heilsulind
  • Gestamóttaka
  • Bar
  • Veitingastaður
  • Skemmtidagskrá

Vistarverur

  • Herbergi
  • Minibar
  • Kaffivél
  • Loftkæling
  • Öryggishólf
  • Sjónvarp
  • Hárþurrka

Fæði

  • Hálft fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun