fbpx Vistaflor, Maspalomas | Vita

Vistaflor, Maspalomas
3 stars

Vefsíða hótels

Vistaflor er skemmtilegur smáhýsagarður sem samanstendur af 210 smáhýsum, öll húsin eru á tveimur hæðum og eru smekklega innréttuð og mjög heimilisleg. 

Val er um smáhýsi ýmist með einu eða tveimur svefnherbergjum. Á neðri hæð húsanna er eldhúskrókur, stofa með svefnsófa og úti verönd með borði og stólum, á efri hæð er svefnaðstaða með svölum og baðherbergi. Í öllum húsunum er öryggishólf gegn gjaldi, hárþurrka, þráðlaust net og loftkæling. 

Smáhýsagarðurinn er á rólegum stað miðsvæðis í Maspalomas. Lítil kjörbúð er á svæðinu þar sem versla má allar helstu nauðsynjar en einnig er verslun í 350 metra fjarlægð. Hægt er að velja um að vera aðeins með morgunmat eða hálft fæði (morgunmatur og kvöldmatur) eða í öllu innföldu.

Garðurinn sem umlykur svæðið er stór og fallegur. Þarna eru tvær sundlaugar en önnur laugin er barnalaug sem er upphituð, sundlaugarnar eru opnar frá kl.10 á morgnana til kl. 18 síðdegis. Sólbekkir eru á víð og dreif víðs vegar um garðinn.  Góð aðstaða er fyrir barnafjölskyldur en þarna er bæði skemmtidagskrá yfir daginn og barnaleiksvæði. Móttaka er opin allan sólarhringinn. Á hótelinu er í boði frí skutlþjónusta tvisvar á dag til og frá Maspalomas ströndinni. Frá hótelinu til Maspalomas strandarinnar er farið klukkan 09:50 og 11:45 og til baka frá ströndinni kl. 15:30 og 16:30.

Vistaflor er tilvalið fyrir fjölskylduna.

Fjarlægðir

  • Frá strönd: 3,9 km
  • Veitingastaðir: 1 km

Aðstaða

  • Sturta
  • Sundlaug
  • Barnasundlaug
  • Kaffivél
  • Veitingastaður
  • Barnadagskrá
  • Barnaleiksvæði
  • Gestamóttaka
  • Nettenging

Vistarverur

  • Öryggishólf
  • Loftkæling
  • Ísskápur
  • Verönd/svalir
  • Íbúðir

Fæði

  • Morgunmatur, Hálft fæði, Allt innifalið

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun