Alicante
Sameinaðu borg, sól og strönd
Myndagallerí
Sameinaðu borg, sól og strönd
Beint flug með Icelandair í allt sumar og út nóvember.
Starfsmaður VITA á Alicante svæðinu er Jóhanna G. Benediktsdóttir. Jóhanna tekur á móti farþegum á flugvelli og hægt er að ná í hana í þjónustu/neyðarsíma á meðan á dvölinni stendur. VITA er ekki með skipulagðar skoðunarferðir á Alicante svæðinu.
Lækkaðu verð ferðarinnar um allt að 60.000 kr á mann með Vildarpunktum Icelandair

Alicante er dásamleg borg, lífleg, flest í göngufæri og ekki skemmir fyrir að þar er einnig hægt að skreppa á ströndina ef þannig liggur á manni. Þessi borg sameinar því borg, sól og strönd
Alicante er staðsett í hjarta Costa Blanca héraðsins á Spáni. Þaðan er akstursfjarlægð til Valencia um 90 mínútur og um fimm klst. til Barcelona. Strandlengjan við borgina er yfir 7 km löng og fjölbreyttir skemmtigarðar og aðstæður til íþróttaiðkunar eru á hverju strái. Einnig er hægt að finna fjölda áhugaverða safna, sögulegar minjar, skemmtilega markaði að hætti innfæddra og heimsþekktar verslanir. Mikil matar- og vínmenning er Í Alicante sem endurspeglast í fjölda framúrskarandi veitingastaða á svæðinu.
GUADALEST
Guadalest er eitt sérstæðasta fjallaþorp Spánar. Það tekur um klukkustund að keyra þangað frá Alicante borg. Íbúar þorpsins eru aðeins um 200 talsins en yfir tvær milljónir ferðamanna heimsækja þorpið á hverju ári sem gerir Guadalest að einum fjölsóttasta ferðamannastað Spánar.
Það er mjög tilkomumikið að aka leiðina upp að Guadalest. Vegurinn til Guadalest er malbikaður en liggur oft bugðóttur utan í bröttum hlíðum fjallsins. Það er mjög eftirminnilegt að aka þessa leið.
Í Guadalest-þorpinu er gamalt Máravirki frá 8. öld, byggt á kletti í um 900 metra hæð yfir sjávarmáli. Eru kastalarústirnar til vitnis um stormasama sögu þess. Þræða þarf um fimm metra löng göng í gegnum klett til þess að komast að elsta hluta þorpsins, en efst trónir kirkjugarðurinn sem býður upp á einstakt útsýni yfir Guadalest dalinn og nærliggjandi sveitir. Frægastur er turninn "Peñon de La Alcalá" sem var notaður til að fylgjast með mannaferðum í dalnum fyrir neðan.
Einnig er að finna í þorpinu tvö söfn, "smámunasafnið Belen" og pyntingasafn. Það er mikil upplifun að koma inn í safnið þar sem litlu dúkkuhúsin eru til sýnis. Þau eru með öllum smáatriðum og svo á hæðinni fyrir ofan er búið að útbúa stórt fjallaþorp úr þessum litlu húsum og öllu tilheyrandi. Þorpsbúar eru frægir fyrir handverk, t.d. handsaumaða dúka, körfugerð og barnaföt. Hægt er að nálgast vörurnar í verslunum sem eru við þröngar götur þorpsins þar sem þær eru höggnar inn í bergið.
ALTEA
Altea er yndislegur lítill bær en þangað tekur u.þ.b. 45 mínútur að keyra frá Alicante, allir sem koma til Spánar ættu að heimsækja Altea. Gamli bærinn stendur uppá hæð sem áður fyrr gerði þorpsbúum kleift að sjá til sjóræningjana sem stundum komu frá Ibiza eða Mallorca og gerðu mikinn óskunda á meginlandinu. Bærinn er þekktur fyrir kirkjuna sem er rómuð fyrir fegurð og byggist gamli bærinn í kringum hana. Það er einstaklega notalegt að ganga um litlu steinlögðu göngugöturnar (háir hælar geta reynst hættulegir) og rétt við kirkjuna er útsýnispallur þaðan sem sést yfir til Benidorm og Calpe.
Fjöldi smáverslana sem selja listmuni, skartgripi og leðurvöru eru við þröngar götur þorpsins og í júlí og ágúst er starfræktur markaður á kirkjutorginu. Tilvalið er að fara til Altea seinnipartinn, ná ljósaskiptunum og bregða sér síðan á einn af veitingastöðum þorpsins.
Gaman er að keyra til Altea á bílaleigubíl. Gæti verið erfitt að fá stæði yfir mesta annatímann. Einnig er hægt að taka leigubíl þangað, en þeir eru ekki dýrir.
Flogið með Icelandair
Láttu þér líða vel og njóttu afþreyingar og frábærrar þjónustu Icelandair alla leið til Alicante og aftur á leiðinni heim.
Veldu þitt sæti
Þú getur valið þitt sæti um borð í vélum Icelandair þegar þú ferðast með VITA. Hafðu ferðalagið eins og þú vilt hafa það!
Afþreyingarkerfi um borð
Yfir 600 klukkustundir af afþreyingarefni um borð í vélum Icelandair. Þú getur horft á nýjar eða klassískar kvikmyndir, sjónvarpsþætti og heimildarmyndir. Einnig er hægt að hlusta á innlenda og erlenda tónlist. Þú ert með snertiskjá fyrir framan þig og ræður ferðinni.
Safnaðu Vildarpunktum
Viðskiptavinir VITA safna 2.300 Vildarpunktum fyrir valdar ferðir í leiguflugi ef bókað er gegnum vefsíðu.
-
Veðrið
-
Flugtími
Kef
ALC
4,5
Morgunflug
-
Gjaldmiðill
€Evra
Gengi
-
Rafmagn
220 Volt