Golf Del Sur á Tenerife
Flott íbúðagisting á Royal Tenerife á frábæru verði!
Myndagallerí
Golfferðir til Tenerife
Við bjóðum uppá mismunandi lengdir ferða á Golf del Sur, allt frá 7 dögum uppí 28 daga eða lengur (sjá bókunarvél). Við bjóðum einnig uppá ótakmarkað golf daglega eða ótakmarkað golf annan hvern dag, sem myndi henta betur í lengri dvölum.
Innifalið í pökkum okkar er:
Beint flug með Icelandair
Gisting á Royal Tenerife CC
Ótakmarkað golf alla daga eða annan hvern dag nema komu og brottfaradaga
Fararstjórn (lágmark 16 manns).
Matur, drykkir og akstur til og frá flugvelli og að golfvellinum er ekki innifalinn.
Eins og staðan er núna eru eingöngu 18 holur opnar á Golf del Sur, Norður og Links vellirnir. Rástímar okkar eru á bílinu 08.00-09.30 daglega..
Royal Tenerife Country Club er mjög hugguleg íbúðagisting á golfvellinum eða um 3 mín ganga að klúbbhúsinu. Á svæðinu er sundlaugarbar með veitingum, kaffihús og matvöruverslun.Hér er hægt að skoða myndband frá Royal Tenerife Country club.
Golfvöllurinn: Golf del Sur er einn af bestu golfvöllunum á Tenerife. Þar hafa verið haldin stórmót fyrir Evrópu túrinn sem er góður mælikvarði á gæðin. Það er einstaklega fallegt á Golf del Sur og frá klúbbhúsinu er stórkostlegt útsýni yfir hluta af vellinum og út á glitrandi hafið.
Golfvöllurinn er 27 holur með mismunandi einkennum. Heilmikið landslag og gil eru í sumum brautum og aðrar eru flatari en þær eiga það sameiginlegt að vera umkringdar pálmum og fallegum kaktusum. Brautirnar eru breiðar, flatirnar eru stórar og í glompunum er svartur sandur sem gerir völlinn öðruvísi og framandi.
Í dag er Golf del Sur 27 holu golfvöllur hannaðar af hinum fræga golfvallahönnuði Pepe Gancedo. Það var hinsvegar Manuel Piñero sem gerði Golf del Sur eina golfvöllinn á Kanaríeyjum að þremur 9 holu völlum þegar hann bætti við þeim hluta sem kallast "links" völlur árið 2005.
27 holunum er fullkomlega deilt á milli þessara þriggja valla. Norður, suður og links. Norður völlurinn sem er 2779 metrar (af gulum) skiptast í 2 par 3 holur, 5 par 4 holur og 2 par 5 holur.
Á suður vellinum eru 2 par 3 holur, 5 par 4 holur og 2 par 5 holur. Suðurvöllurinn er 2838 metrar (af gulum). Links vellinum er skipt niður í 2 par 3 holur, 5 par 4 holur og 2 par 5 holur og er 2771 metrar (af gulum).
Golf del Sur - sjá myndband
FARARSTJÓRI:
Fararstóri VITAgolf á Tenerife hefur yfirumsjón á rástímum okkar farþega á golfdögum.
Ummæli Golf del Sur
Ég var að koma frá Tenerife þar sem ég gisti á Royal Tenerife og lék golf á hverjum degi í 15 daga. Fyrst af öllu vil ég lýsa yfir ánægju minni með gistinguna, frábært að gista þarna við golfvöllinn og aðbúnaður eins góður og getur verið fyrir minn smekk. Dvölin var í alla staði mjög ánægjuleg. Fararstjórn á staðnum er og hefur verið frá upphafi frábær. Atli, nýr fararstjóri heldur vel utan um alla hluti, tekur á móti farþegum á hótelunum þegar þeir koma frá flugvelli. Mætir alltaf fyrstur á völlinn á morgnana og ræsir út. Atli miðlar upplýsingum, svo sem rástímum og öðru á messenger og persónulega til þeirra sem ekki eru á messenger.
- Sigurður Hauksson - nóv 2019
-
Veðrið
-
Flugtími
Kef
TFS
5
Morgunflug