Golfferð til Madeira
Glæsilegt klassískt sveitahótel við ævintýralegan golfvöll
Myndagallerí
Páskaferð 2025 frá 12.-22. apríl í 10 nætur
Fararstjóri: Peter Salmon
Hin portúgalska eldfjallaeyja, Madeira liggur vestur af ströndum Afríku og er heimur út af fyrir sig. Hitabeltisloftslag, friðsæld, náttúrufegurð, veðursæld og fjölbreytt mannlífið er heillandi. Frá flugvellinum í Madeira er aðeins 15 mínútna akstur að Palheiro 5* lúxushótelinu sem okkar gestir gista á í þessari ferð. Myndband frá Madeira
Hotel Casa Velha do Palheiro er byggt í ekta portúgölskum/enskum byggingastíl. Á hótelinu er rólegt og yfirvegað andrúmsloft um leið og lúxus og þægindi blandast saman. Veitingastaður hótelsins er þekktur fyrir einstaklega góðan mat og þjónustu. Þrátt fyrir góðan mat á hótelinu er ekki hægt að sleppa ferð í miðbæ Funchal, aðeins 10 mínútur frá hótelinu (ókeypis skutlbíll), til að upplifa bæjarstemmninguna og veitingahús þau þrjú kvöld sem matur er ekki innifalinn.
Casa Veiha do Palheiro var byggt snemma á síðustu öld. Árið 1997 var það opnað sem eitt af fyrstu 5 stjörnu sveitahótelum á Madeira. Hótelið er staðsett uppí brekkum austur af Funchal og er aðeins 7 km frá þeim bæ og 15 km frá flugvellinum. Hótelið er afmarkað af Palheiro golfvellinum annars vegar og hins vegar af Palheiro blómagörðunum, garðurinn er með blóm og jurtir allstaðar að úr heiminum. 45 þúsund gestir heimsækja garðinn á hverju ári.
Palheiro 18 holu golfvöllurinn er fallegur, vel hirtur með einstöku útsýni yfir bæinn Funchal og hafið. Völlurinn er sumstaðar mjög hæðóttur sem getur verið krefjandi en aftur á móti blasir við frábært útsýni á hverri holu. Klúbbhúsið og fyrsti teigur er u.þ.b. 3ja mínútna akstur frá í skutlbíl sem gengur frá hótelinu.
Madeira umsögn
Golfvöllurinn Palheiro er mjög skemmtilegur, stundum krefjandi, en mjög margbreytilegur. Hótelið er gamalt herrasetur ætlað til veiða upphaflega. Það er ef til vill ekki samkvæmt nýjustu tísku en mjög virðulegt, fallegt, hreint og í fögru umhverfi. Þjónustan var frábær og maturinn!...... það vantar orð til að lýsa glæsilegum þriggja rétta máltíðum, sem fram voru bornar öll kvöld.Fararstjórn var frábær í höndum Jóns Þórs Gylfasonar.
- Ragna og Hjálmar, sept 2021
-
Veðrið
-
Flugtími
Kef FNC
4
Morgunflug