Lúxus sigling um Karíbahaf í nóvember
Arúba, Curacao og Grand Cayman
Myndagallerí
Sól og hiti í nóvember - Sigling í Karíbahafinu
Með nýju og glæsilegu skipi Celebrity Ascent
11. nóvember - 21. nóvember
Fararstjóri: Kristjana Lilja Wade
Miami og Ft. Lauderdale, Flórída - Willemstad, Curacao - Oranjestad, Aruba - George Town, Grand Cayman.
Stutt ferðalýsing
Flogið er með Icelandair seinnipartinn 11. nóvember, lending er í Miami klukkan 20:55, ekið beint á hótel https://www.marseilleshotel.com/ þar sem gist er í 2 nætur fyrir siglingu. Í siglingunni er komið við á þremur yndislegum eyjum í Karíbahafinu sem eru. Curacao, Aruba og Grand Cayman, áður en haldið er aftur til Flórída og komið í land í Ft. Lauderdale. Flogið er sama dag og skipið kemur í höfn frá Miami-flugvelli klukkan 17:15 og lent í Keflavík klukkan 05:55 morguninn eftir.
Celebrity Ascent
Celebrity Ascent er fjórða og nýjasta skipið í nýjum Edge-flokki skipafélagsins og fór í sína fyrstu ferð haustið 2023. Þetta nýja skip mun breyta því hvernig við ímyndum okkur siglingar með farþegaskipum, meðal annars með nýju úrvali klefa sem standa gestum til boða.
Með Celebrity Ascent eru mörkuð tímamót í því hvernig við nálgumst skipahönnun. Hvert einasta skref við hönnunina, frá fyrstu skissum upp í sýndarveruleika, var unnið í þrívídd. Hönnunin á skipinu er í algjörum sérklassa,algjört augnakonfekt og hönnunarsprengja fyrir fagurkera . Töfrateppið (Magic Carpet) sem líkt og hangir utan á skipinu. Gestum býðst með þessu áður óþekkt upplifun af nálægðinni við hafið og viðkomustaðina og á það jafnt við um Edge-klefana með Infinite-veröndum og sundlaugaþilfarið þar sem útsýnið yfir hafið og viðkomustaðina er engu líkt.
Flugtafla
Flugnúmer | Dags | Flugvöllur | Brottför | Flugvöllur | Lending |
FI691 | 11. nóvember | Keflavík | 17:15 | Miami | 20:55 |
FI690 | 21. nóvember | Miami | 17:15 | Keflavík | 05:55+1 |
Siglingaleið
Dagur | Áfangastaður | Koma | Brottför |
13. nóvember | Fort Lauderdale | 15:30 | |
14. nóvember | Á Siglingu | ||
15.nóvember | Á Siglingu | ||
16. nóvember | Willemstad, Curacao | 08:00 | 18:00 |
17. nóvember | Oranjestad, Aruba | 08:00 | 18:00 |
18. nóvember | Á Siglingu | ||
19. nóvember | George Town, Grand Cayman | 09:30 | 18:00 |
20. nóvember | Á Siglingu | ||
21. nóvember | Fort Lauderdale | 07:00 |
Þriðjudagur 11. nóvember, Keflavík - Miami
Flogið er með Icelandair seinnipart 11. nóvember eða um kl 17:15 og lent í Miami kl: 20:55 að staðartíma. Flugið tekur tæpar 9 klst. Þegar komið er út af flugstöðinni bíður rútan eftir hópnum og ekið á hótel Marseilles Oceanfront South Beach á South Beach í Miami þar sem gist er í tvær nætur.

Þriðjudagur 11. og miðvikudagur 12. nóvember
Tveir fyrstu dagarnir eru teknir rólega í Miami. Hægt að skoða næsta umhverfi, fara í búðir eða bara að njóta veðursins og leggjast á bekk við sundlaugina.

Fimmtudagur 13. nóvember Miami - Celebrity Ascent
Eftir morgunverð er ekið til Ft. Lauderdale og tékkað inn um hádegisbil. Gott er að nýta tímann fram að brottför í að finna klefann sinn, fá sér léttan hádegisverð þar sem mikið úrval er af margs konar réttum eða ganga um skipið og byrja að njóta. Þegar kemur að brottför er gaman að koma sér fyrir á góðum stað uppi á þilfari og fylgjast með þegar Ascent siglir út innsiglinguna að Port Everglades-höfninni.

Föstudagur 14. og laugardagur 15. nóvember - Á siglingu
Fyrstu tveir dagarnir eru á sjó og siglt suður Karíbahaf og alla leið að norðurströndum Suður- Ameríku. Á fyrri deginum er gott að nota morguninn í að skoða skipið og mun fararstjóri ganga um skipið og kynna það fyrir hópnum svo auðveldara sé að rata um það. Mikið er um að vera þessa daga sem skipið er á siglingu og hægt að velja úr alls konar kynningum, námskeiðum eða bara að njóta þess að njóta sólar og þjónustu um borð sem er fyrsta flokks, hvort sem það er að láta dekra við sig í nuddi eða snyrtingu eða bara á sundlaugardekkinu. Á kvöldin eru síðan 3ja rétta máltíðir auk þess að fara í leikhúsið eða njóta tónlistar frá frábærum listamönnum sem eru um allt skip.

Sunnudagur 16. nóvember - Willemstad, Curacao
Kyrrlætið einkennir Kralendijk, höfuðborg Bonair-eyju sem tilheyrir Hollensku Attillaeyjum. Þó er litagleðin við völd í kalksteinshúsunum þar sem bleikir, appelsínugulir og lime-grænir litir kallast á. Bonaire er þekkt fyrir frábærar aðstæður til köfunar, sjávargrunnið í kringum eyjuna er einn stór vatnasportgarður, en ekki síður fyrir breiður flamingófugla, góðar gönguleiðir og eina spilavítið í Karíbahafi þar sem berfættir eru boðnir velkomnir

Mánudagur 17. nóvember - Oranjestad, Arúba
Tveir dagar á þessari yndislegu eyju, Celebrity Eclipse leggur að bryggju kl 8 að morgni 3. mars og fer ekki fyrr en kl 16:00 daginn eftir.
Á hrífandi fagurri suðurströnd Arúba stendur höfuðstaður eyjunnar, Oranjestad. Útskornar hurðir í bland við hefðbundnar hollenskar flísar og opnar verandir á marglitum, reisulegum húsunum ljá þessum gamla hollenska höfuðstað eyjunnar einstaklega sjarmerandi blæ. Hér mættust ólíkir siðir og venjur frumbyggjanna og hollensku nýlenduherranna og til varð einstaklega heillandi samfélag. Þeir sem heimsækja eyjuna í dag geta notið þess besta úr báðum menningarheimum auk þess að njóta fegurðar strandlengjunnar, frábærra aðstæðna til köfunar og spennandi næturlífs.

Þriðjudagur 18. nóvember - Á siglingu
Heill dagur til að njóta lífsins um borð í skipinu, sem nú siglir til Grand Cayman. Njótið þess að skoða skipið, leggjast á sólbekk við sundlaugina og smakka hina litskrúðugu og ljúffengu kokteila sem barþjónarnir blanda. Svo má fara í búðir, á málverkauppboð - eða kannski á matreiðslunámskeið, danskennslu eða sækja fyrirlestur. Matur og drykkur allan daginn, svo bíður 3ja rétta kvöldverður og glæsileg sýning um kvöldið.

Miðvikudagur 19. nóvember - George Town, Grand Cayman.
George Town er litrík og leiftrandi borg, þar sem allir ættu að geta upplifað ævintýri við sitt hæfi, hvort sem það er með því að sleppa fram af sér beislinu í tollfrjálsum verslunum eða sökkva sér í snorkl, leggjast í bátsferðir eða á silkimjúkar sandstrendur, nú eða heilsa upp á viðkunnanlegar
stingskötur ( stingray ) við næsta sandrif.

Fimmtudagur 20. nóvember - Á siglingu
Síðasta dagsins er notið á skipinu. Hvort sem kosið er að vera úti á dekki í sólinni og láta stjana við sig og skemmta af starfsfólki skipsins eða vera innandyra þar sem margt er um að vera, hvort sem er útsölur á göngugötunni, taka á því í ræktinni, láta stjana við sig í nuddi eða öðru í heilsulindinni, eða bara njóta þess að vafra um skipið.

Föstudagur 21. nóvember - Ft. Lauderdale og Miami
Celebrity Ascent leggur að bryggju í Ft. Lauderdale kl. 07:00 og þá er að njóta síðasta morgunverðarins í skipinu. Farið frá borði um kl. 09:00 og í rútu sem bíður hópsins, ekið að Everglades-þjóðgarðinum þar sem farið er um borð í svifbáta ( air boats ) og siglt um síkin þar sem sjá má skrautlegt dýralíf og horft á krókudílasýningu áður en haldið er áfram. Keyrt er í gegnum Litlu Havana, Miami Beach og Coconut Grove áður en keyrt er upp á flugvöllinn á Miami og flugið tekið heim klukkan 17:15.

-
Veðrið
-
Flugtími
Kef
MIA
9
Eftirmiðdagsflug
-
Gjaldmiðill
USDDollar
Gengi