Páskar í Kína
Gullni hringurinn um helstu perlur Kína
Myndagallerí
Gullni hringurinn um helstu perlur Kína, Peking, Xian, Guilin og Shangai
Páskaferð 26.mars - 13.apríl 2026
Fararstjóri: Héðinn Svarfdal Björnsson
Í þessari eftirminnilegu ferð Icelandair VITA til fjölmennasta ríki heims munum við upplifa fjölmargar af þeim helstu menningar- og náttúruperlum sem þessi forni menningarheimur hefur upp á að bjóða. Horft verður til fortíðar, framtíðar og náttúru þjóðarinnar í ferðum okkar um landið, en einnig munum við fræðast um tungumál, menningu, matarhefðir, félagslíf og margt fleira.
Öldum áður en Ísland var uppgötvað voru Kínverjar farnir að prenta á pappír, nota byssupúður, drekka te, klæðast fötum úr silki og borða núðlur úr postulínsskálum, samhliða því að þróa stjórnmálafræðilegar, trúarlegar og heimspekilegar kenningar og hugsjónir. Í dag er þessi efnahagsrisi á hraðri leið inn í nútímann og býður Kína því upp á áhugaverðar andstæður, bæði til borga og sveita.

Á ferð okkar um þriðja stærsta land veraldar verður í boði fjölbreytt dagskrá á öllum áfangastöðum og er morgunmatur ávallt innifalinn á hótelunum, oftast hádegisverður og stundum kvöldmatur (sjá ferðalýsingu hér að neðan). Samhliða er lögð áhersla á að ferðalangar hafi líka einhvern frjálsan tíma aflögu til að njóta sín eftir eigin höfði, enda lagt upp með að ferðin verði afslöppuð og þægileg með dvöl á góðum hótelum. Fyrir þá sem vilja hinsvegar upplifa sem allra flest í ferðinni, mun íslenskur fararstjóri skipuleggja aukadagskrá á lausum kvöldstundum og frjálsum dögum, gegn gjaldi.

Flugtímar
Útflug | Brottför | Koma | ||||
---|---|---|---|---|---|---|
26.mars | FI900 | Keflavík | 15:25 | Istanbul | 26.mars | 23:55 |
27.mars | TK088 | Istanbul | 02:05 | Peking | 27.mars | 16:15 |
Innanlands: | ||||||
31.mars | G307 með lest | Beijing | 09:10 | Xian | 31.mars | 15:07 |
02.apríl | MU2307 | Xian | 07:30 | Guilin | 02.apríl | 10:00 |
06.apríl | SC4768 | Guilin | 13:10 | Hangzhou | 06.apríl | 15:15 |
Heimflug | ||||||
11.apríl | TK027 | Shanghai | 22:25 | Istanbul | 12.apríl | 05:20 |
13.apríl | TK1973 | Istanbul | 10:00 | Dublin | 13.apríl | 12:35 |
13.apríl | FI419 | Dublin | 14:15 | Keflavík | 13.apríl | 15:55 |
Dagskrá og ferðatilhögun
Föstudagur 27. mars - Lent í Peking
Eftir lendingu á flugvellinum í höfuðborg Kína er farið með rútu beint á hótelið þar sem fólk getur aðeins hvílst fram að kvöldverði.
Við dveljum í fjórar nætur á 5* hótelinu Regent Beijing, sem er í miðborginni. Kvöldverður á veitingastað í borginni.
Innifalið: Kvöldverður

Laugardagur 28. mars - Múrinn mikli
Mao formaður sagði eitt sinn að „engin sé sönn hetja, nema að hafa klifið á múrinn mikla." Í dag verðum við öll að hetjum, því dagurinn í dag bíður upp á leiðangur til norðurs upp á eitt af helstu undrum veraldar. Á leiðinni þangað heimsækjum við grafhýsi Yongle, eins frægasta keisara Ming-tímabilsins og göngum í leiðinni eftir Hinni helgu leið. Að því loknu fáum við okkur svo hádegisverð. Við fáum góðan tíma til að rölta um á múrnum áður en við höldum af stað aftur inn í borgina, en farið verður fram hjá ólympíuleikvanginum (2008) „Hreiðrinu“ á leiðinni upp á hótel þar sem frjáls tími tekur við.
Innifalið: Morgun-, hádegis og kvöldverður.

Sunnudagur 29. mars - Himnahofið og ferð um gömlu borgina
Eftir morgunverð förum við að Himnahofinu, borðum saman hádegisverð og ferðumst svo um gamalt Hutong hverfi í borginni á hjólavögnum (e. rickshaw). Um kvöldið er svo hin fræga Peking önd á matseðlinum á veitingastaðnum Quanjude.
Innifalið: Morgun-, hádegis og kvöldverður.

Mánudagur 30. mars - Torg hins Himneska Friðar og Forboðna borgin
Dagurinn sem við röltum um á torginu við Hlið hins himneska friðar (Tiananmen torg) sem er stærsta borgartorg sinnar tegundar í heiminum. Leiðin liggur svo norðan við torgið í gegnum gömlu keisarahöllina, Forboðnu borgina svokölluðu. Þar bjuggu keisarar Kínaveldis í gegnum aldirnar áður en keisaratímabilið endaði með PuYi litla (sjá bíómyndina Síðasti keisarinn).
Innifalið: Morgun- og hádegisverður.

Þriðjudagur 31. mars - Farið til Xi'an – Hof og borgarmúr
Eftir morgunmat á hótelinu í Beijing er farið út á lestarstöð og farið með hraðlest til Xi'an, upphaf fornu silkileiðarinnar - gist í tvær nætur í borginni á 5* Sofitel Xian on Renmin Square.
Við sækjum heim frægt búddistahof sem kennt er við villta gæs sem féll til jarðar á þeim stað sem hofið er að finna (e. Big Wild Goose Pagoda) og þaðan er haldið er inn í miðborg Xi'an þar sem klifið verður upp á gamla borgarmúrinn og gamla múslimahofið heimsótt.
Kvöldverður ásamt hugljúfri sýningu í anda Tang-valdatímabilsins er á boðstólnum um kvöldið.
Innifalið: Morgun- og kvöldverður.

Miðvikudagur 1. apríl - Leirherinn í Xi'an
Einstakur fornleifafundur er heimsóttur í dag, leirherinn fyrir utan Xi'an, sem vernda átti fyrsta keisarann í Kína, Qin, í eftirlífinu. Hádegisverður og síðan litið inn á leirkeraverkstæði. Njótum síðdegisins í miðborginni.
Gisting hótel Sofitel Xian.
Innifalið: Morgun og hádegisverður.

Fimmtudagur 2. apríl - Xian - Guilin
Flogið er til Guilin, þar sem við dveljum í 2 nætur á fimm stjörnu hóteli, Lijiang Waterfall inn í miðjum bænum. Hótelið er m.a. þekkt fyrir að bjóða upp á stærsta manngerða foss í heimi sem streymir niður síðu hótelsins hvert kvöld.
Kvöldverður á veitingastað í miðborginni.
Innifalið: Morgun- og kvöldverður.

Föstudagur 3. apríl - Reyrflautuhellir og Hóll sem er eins og fíll í laginu
Hellir sem bjargaði lífi mörg þúsund Guilin-búa í seinni heimstyrjöldinni er heimsóttur eftir morgunmat, en um er að ræða fagran og upplýstan dropasteinshelli. Perluverslun er heimsótt á leiðinni aftur í bæinn, en svo skoðum við hól úr kalksteini sem minnir á fíl að drekka vatn úr ánni (e. Elephant Trunk Hill). Að þeirri heimsókn lokinni tekur við frjáls tími, en í lok dags er boðið upp á kvöldverð á kínverskum veitingastað.
Innifalið: Morgun-, hádegis og kvöldverður.

Laugardagur 4. apríl - Sigling niður Li-fljótið til Yangshuo
Eftir morgunmat á hótelinu förum við um borð í bát sem siglir með okkur niður Li-fljótið til þorps sem nefnist Yangshuo, en á leiðinni sjáum við einn merkasta þjóðgarð Kína þar sem m.a. vatnavísundar og skarfar spóka sig í ánni með víðfrægum og fallegum fjöllum í bakgrunni. Borðað verður um borð í bátnum, sem kemur í höfn til Yangshuo upp úr hádegi. Að ferðinni lokinni tekur við frjáls tími í bænum en síðan er ekið að hótelinu, Yangshuo Green Lotus þar sem við gistum næstu tvær nætur.
Kvöldið er frjálst, en fararstjóri býður upp á aukadagskrá fyrir áhugasama, t.d. fótanudd og/eða kvöldmáltíð fyrir ævintýrafólk.
Innifalið: Morgun- og hádegisverður.

Sunnudagur 5. apríl - Frjáls dagur í Yangshuo
Bærinn Yangshuo býður upp á einstakt tækifæri bæði til að slappa af í rólegri stemningu og einnig að rölta um í stórbrotinni og fallegri náttúru. Þar að auki geta áhugasamir fylgt fararstjóra í hjólreiðatúr um nærliggjandi sveitir og/eða á matreiðslunámskeið í kínverskri matargerð (þar sem byrjað er á göngutúr í hefðbundinn markað til að kaupa rétt hráefni, þ.e. áður kveikt er á gasinu undir wok-pönnunni).
Innifalið: Morgunverður.

Mánudagur 6. apríl - Flogið til Hangzhou
Qinghefang Ancient gatan eini vel varðveitti hluti fornu borgarinnar. Sem smækkuð mynd af langri sögu borgarinnar, hún er besti staðurinn með sögulegan og menningarlegan karakter Hangzhou. Kvöldverður snæddur á veitingastað. Gist er á Sofitel Hangzhou Westlake eina nótt áður en farið er til Shanghai.
Innifalið: Morgun- og kvöldverður.

Þriðjudagur 7. apríl - Hangzhou, te búgarður og Shanghai
Eftir morgunverð er farið að hinu undurfagra West Lake, þar er siglt um vatnið og Lingvin musterið heimsótt sem er við norðurenda vatnsins. Síðan er farið Longjing té búgarðurinn. Eftir hádegisverð er ekið til Shanghai og þar er gist á fimm stjörnu hótelinu Grand Central sem er vel staðsett skammt frá Bund svæðinu.
Innifalið: Morgun,- hádegis og kvöldverður.

Miðvikudagur 8. apríl - Gamla Shanghai
Gamla Shanghai er í brennidepli í dag, en við heimsækjum búddistahof sem kennt er við stórt líkneski úr jaði (e. Jade Buddha Temple) áður en leiðin liggur að garðinum sem var í eigu aðalsættar sem bjó í borginni. Í kringum garðinn er svo að finna líflegan, gamlan markað með ýmis konar verslunum, en þar verður boðið upp á frjálsan tíma (og einnig möguleg heimsókn í tehús fyrir áhugasama). Eftir hádegismatinn heimsækjum við svo silkiverksmiðju. Kvöldverður snæddur á veitingastað.
Innifalið: Morgun-, hádegis og kvöldverður.

Fimmtudagur 9. apríl - Shanghai
Eftir morgunverð er farið í helsta minjasafn borgarinnar (e. Shanghai Museum) einnig í Oriental Pearl TV Tower sem er sá næst hæsti sjónvarpsturn í Kína alls 468 m. hár en veitingastaðurinn er í 267 metrum. Síðan er farið í Xintiandi area og French Concession, þar sem hægt er að gleyma sér í verslunum eða skoða sig um. Um kvöldið er svo boðið upp á kvöldverð og eina af vinsælustu sýningum borgarinnar (e. Acrobatic show).
Innifalið: Morgun og kvöldverður.

Föstudagur 10. apríl - Frjáls dagur í borginni
Fararstjóri mun bjóða upp á aukaferð fyrir áhugasama en annars er frjáls dagur.
Innifalið: Morgunverður
Laugardagur 11. apríl - Haldið áleiðis heim með viðkomu í Istanbul
Frjáls dagur fram að brottför til Istanbul klukkan 22:25.
Innifalið: Morgunverður.
Sunnudagur 12. apríl - Gist eina nótt í miðborg Istanbul
Lent í Istanbul klukkan 05:20 að morgni. Keyrt beint á hótel Kent sem er staðsett í miðborginni þar sem við eigum frjálsan dag til að skoða okkur um.
Innifalið: Morgunverður.
Mánudagur 13 apríl - Flogið heim til Keflavíkur með millilendingu í Dublin
Eftir morgunverð verður haldið út á flugvöll þar sem flogið verður til Dyflinnar klukkan 10:00 og áframhaldandi flug þaðan heim til Keflavíkur þar sem lent verður klukkan 15:55.
Gististaðir
-
Veðrið
-
Flugtími
Kef
PEK
um 12 klst
Eftirmiðdagsflug
-
Gjaldmiðill
¥Yuan
Gengi
-
Rafmagn
220 volt
-
Bjórverð
8 CNY innlendur
160 ISK