fbpx A-Rosa Silva | Vita

A-Rosa, Silva
4 stars

A-Rosa Silva er fljótabátur sem siglir á Rín. Hann er í eigu skipafélagsins A-Rosa sem er þýskt skipafélag. Báturinn er 135 m. á lengd og 11,4 m á breidd. Hann er með 95 klefa og svítur og allir klefar eru búnir góðum þægindum. Þeir eru ýmist með glugga eða með svokölluðum Juliette-svölum. Klefarnir eru einnig með öryggishólf, loftkælingu, sjónvarp og hárblásara. Baðherbergin eru með snyrtivörum og sloppum. Rúmgott sólardekk er á bátnum með sundlaug, gufubaði, púttvelli og stóru taflborði auk annarrar afþreyingar. Um borð eru girnilegir veitingastaðir, einn með hlaðborð/grill og annar a la carte staður ásamt bar. Njótið fljótasiglinga á Rín sem er ein lengsta á í Evrópu og rennur í gegnum alls 10 lönd sem eru fleiri en nokkur önnur á.
Meðfram Rín má sjá mikið landslag, kastala, rómantísk þorp, líflegar borgir, gamla miðaldabæi, timburhús og nútímalegan arkitektúr.

Vistarverur

  • Þrif
  • Lín og handklæðaskipti
  • Herbergi
  • Hárþurrka
  • Loftkæling
  • Öryggishólf
  • Sjónvarp

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun