Aðventan á Rín
Sigling og jólamarkaðir
Myndagallerí
Ógleymanleg sigling á aðventu
Jólamarkaðir og sigling á Rín
2-9. desember.
Fararstjóri : Astrid Helgadóttir.
Uppselt
Frankfurt, Köln, Germersheim/Speyer, Strassbourg, Mainz, Koblens
Stutt ferðalýsing
Flogið með Icelandair til Frankfurt í morgunflugi 2. desember og ekið á hótel í Köln þar sem gist er eina nótt fyrir siglingu. 3. desember er farið um borð í A- Rosa Silva og siglt af stað kl 17:00. Komið við í dásamlegum borgum og bæjum, sem allir eru rómaðir fyrir jólamarkaði sína. Komið í land aftur í Köln 8. desember og þá er ekið til Koblenz, þar sem gist verður eina nótt og flogið heim um miðjan dag 9. desember frá Frankfurt
Flug:
Flugnúmer | dags | Flugvöllur | kl | Flugvöllur | kl |
---|---|---|---|---|---|
FI520 | 2. desember | Keflavík | 07:25 | Frankfurt | 12:05 |
FI521 | 9. desember | Frankfurt | 13:05 | Keflavík | 15:55 |
Siglingaleiðin:
Dagur | Áfangastaður | koma | Brottför |
---|---|---|---|
3. desember | Köln, Þýskalandi | 17:00 | |
4. desember | Rudesheim, Þýskalandi | 10:00 | 18:00 |
5. desember | Germersheim/Speyer, Þýskalandi | 08:00 | 19:00 |
6. desember | Kehl (Strassbourg), Þýskalandi ( Frakklandi) | 07:00 | 18:00 |
7. desember | Mainz, Þýskalandi | 06:00 | 12:00 |
7. desember | Siglt fram hjá Lorelay, eftir hádegið | ||
7. desember | Koblenz, Þýskalandi | 18:30 | 21:30 |
8. desember | Köln, Þýskalandi | 05:00 |
A-Rosa Silva
A-Rosa, Silva er fljótabátur sem siglir á Rín, í eigu skipafélagsins A-Rosa sem er þýskt skipafélag. Donna er 135 m. á lengd og 11,4 m á breidd. Á þessu skipi eru 95 klefar og svítur, allir búnir góðum þægindum. Klefarnir eru ýmist með glugga eða með svokölluðum Juliette-svölum. Klefarnir eru allir með öryggishólfi, loftkælingu, sjónvarpi og hárblásara, baðherbergin með snyrtivörum og sloppum, rúmgott sólardekk með sundlaug, gufubaði, púttvelli og stóru taflborði auk annarra leiktækja. Veitingastaðir, hlaðborð og einnig grill og a la carte staður og bar. Njótið fljótasiglinga á Rín sem er ein lengsta á í Evrópu og rennur í gegnum alls 10 lönd sem eru fleiri en nokkur önnur á.
Meðfram Rín má sjá mikið landslag, kastala, rómantísk þorp, líflegar borgir, gamla miðaldabæi, timburhús og nútímalegan arkitektúr.
Rín
Eftir að skógarnir sem náðu út í Rínarfljóteð voru fjarlægðir, þá hefur Rín liðast rólega áfram næstum alla leið frá upptökum til sjávar. Það er undursamlegt að sigla með fljótabát í nokkra daga og láta jólastressið hverfa. Sigla rólega meðfram kastölum, höllum og klaustrum og að bæjum sem búið er að klæða í jólabúningin. Þar er hægt að skoða og versla auk þess sem gaman er að smakka margs konar nasl eins og bökuð epli og púns undir fallegri tónlist brass bands.
Mánudagur 2. desember Frankfurt - Köln
Flogið til Frankfurt með Icelandair í morgunflugi kl. 07:25 og lent í Frankfurt um kl.12:05. Það bíður rúta og ekið er til Kölnar og tekur aksturinn um tvær klukkustundir. Komið á hótel Mercure Severinhof þar sem gist er í eina nótt fyrir siglingu. Örstutt er á jólamarkaðina frá hótelinu.
Þriðjudagur 3. desember A-Rosa Silva
Morgunverður á hótelinu og um miðjan dag er ekið að skipi. A-Rosa Silva leggur af stað kl. 17:00. Kvöldverður og skemmtun er á skipinu öll kvöld.
Miðvikudagur 4. desember Rudesheim, Þýskalandi
Íbúar bæjarins skilgreina stærsta aðdráttaraflið, hið heimsfræga Drosselgasse stræti, sem „144 metra af joie de vivre“ eða lífsgleði. Þetta er miðja rómantísku stefnunnar sem varð fjölda skálda og tónlistarmanna að innblæstri en sem dæmi samdi Brahms þriðju sinfóníuna sína á þessum slóðum. Rüdesheim er best þekkti staðurinn á Rheingau svæðinu og þar eru fjölmörg menningarleg kennileiti, glæsilegar byggingar og virki. Það sem fullkomnar svo heimsóknina til borgarinnar og nærsvæðis hennar er bolli af Rüdesheim kaffi sem kemur frá bænum. Jólamarkaðurinn í Rudesheim gengur undir nafninu Jólamarkaður Þjóðanna eða “Christmas Market of Nations þar sem er boðið upp á vörur frá yfir 20 þjóðum frá þremur heimsálfum.
Fimmtudagur 5. desember Germersheim/Speyer, Þýskalndi.
Við efri hluta Rínar er Germersheim sem er aðeins í um 20 km fjarlægð frá Speyer þar sem Silva kemur að landi. Speyer er einn elsti miðaldabær í Þýskaland en hún er yfir 2000 ára gömul. Jólamarkaðurinn, sem er töfrum líkastur, er blanda af hefðum, menningu og gleði og færir gestum sannarlega jólaandann.
Föstudagur 6. desember Strassbourg (Kehl)
Í dag er það Srassbourg í Frakklandi. Strassbourg er ein af þessum gömlu borgum með miðalda timburhúsum og glæsilegum borgarhöllum. Hápunkturinn er dómkirkjan og hægt er að horfa yfir gömlu timburhúsin af útsýnispallinum. Njótið dagsins í franska hluta Rínarhéraðsins.
Laugardagur 7. desember Fyrir hádegi Mainz, Þýskalandi
Mainz bleibt Mainz (eða ‘Mainz er alltaf Mainz’) er meira en bara máltæki því þessi fullyrðing lýsir hinum afslappaða lífsstíl sem íbúar borgarinnar eru stoltir af. Þetta viðhorf gerir borgina að ánægjulegum viðkomustað fyrir ferðamenn því hér er tekið einstaklega vel á móti nýju fólki. Tvö þúsund ára saga Mainz gerir borgina að einni af elstu borgum Þýskalands og í henni getur þú séð söguna lifna við á hverju götuhorni. Missið ekki af því að heimsækja sögulega jólamarkaðinn á Domplatz. Upplýsta og skreytta dómkirkjan mun án efa heilla.
Laugardagur 7. desember siglt um Loreley eftir hádegið
Siglt meðfram Loreley klettinum sem er 132m hár og skagar út í Rín. Kletturinn gefur frá sér bergmál og segir sagan að falleg mey hafi kastað sér út í Rín í örvæntingu yfir trúlausum elskuhuga og breyst í sírenu sem kokkaði sjómenn til glötunar.
Laugardagur 7. desember Koblenz, Þýskalandi kvöld
Í siglingunni um Rín gefst tækifæri til að skoða Koblenz. Saga borgarinnar nær aftur um yfir 2000 ár sem gerir hana eina af elstu borgum í Þýskalandi. Borgarmyndin er falleg og þar eru fjölmörg sögu- og menningarleg kennileiti. Skoðaðu hallirnar í Koblenz, virðulegar byggingar, glæsileg íbúðarhús, þröng stræti og rómantísk götuhorn. Njóttu útsýnisins á meðan A-ROSA Silva siglir meðfram hinu fræga Deutsches Eck, nesinu þar sem árnar Mósel og Rín mætast. Njótið Kvöldsins í Koblenz.
Sunnudagur 8. desember Köln, Þýskalandi.
Komið aftur í land í Köln snemma morguns, eða um kl. 05:00 en byrjað á morgunveði og síðan er farið frá borði. Rúta bíður hópsins og ekið er til Koblenz á hótel Mercure Koblenz þar sem gist er síðustu nóttina. Þá er hægt að skoða og njóta Koblenz að degi til.
Mánudagur 9. desember Koblenz – Frankfurt heimferð
Eftir morgunverð á hótelinu er ekið til Frankfurt, aksturinn tekur rétt rúma klukkustund. Þaðan verður flogið heim til Keflavíkur kl. 13:05 og lent um kl. 15:55
-
Veðrið
-
Flugtími
Kef FRA
4 klst
Morgunflug
-
Gjaldmiðill
€Evra
Gengi