fbpx Albir Garden. Gott íbúðahótel. Stutt frá strönd. Í Albir milli Benidorm og Altea

Albir Garden
3 stars

Vefsíða hótels

Albir Garden Resort er gott íbúðahótel, stutt frá ströndinni í Albir, rólegum bæ miðja vega milli Benidorm og Altea á Costa Blanca. Hentar mjög vel fyrir fjölskyldur.

Hótelið státar af rúmlega 400 vistarverum í lágreistum (þriggja hæða) byggingum. Íbúðirnar rúma allt að fjóra,en tveir geta sofið inn í svefnherbergi og tveir í svefnsófa í stofunni. Íbúðirnar eru einfaldar en snyrtilegar með litlum svölum. Allar íbúðir eru bjartar, flísa- og parketlagðar og að sjálfsögðu loftkældar og upphitaðar. Í þeim er sjónvarp og sími en öryggishólf eru í móttöku. Eldhúskrókur er með helluborði, kæliskáp, örbylgjuofni og öðru því sem er nauðsynlegt. Þráðlaus net er á almenningssvæðum og í íbúðum, gestum að kostnaðarlausu. Svalir eru á öllum íbúðum.

Veitingahús er á staðnum með möguleika á morgun- hádegis og kvöldmat. Við sundlaugina er hægt að fá úrval drykkja og ýmiss konar léttmeti. Þá er setustofubar einnig í hótelinu.

Fjölbreytt afþreying er á hótelinu, aðallega frá miðjum júní fram í miðjan september. Má þar nefna tvær sundlaugar og sérstaka barnalaug í fallegum og gróskumiklum garði. Þar er að sjálfsögðu góð sólbaðsaðstaða með bekkjum og sólhlífum og tvær stórar vatnsrennibrautir. Góð leikaðstaða er fyrir börn og skemmtidagskrá er á svæðinu. Ekki er nema nokkurra mínútna gangur niður á strendur sem eru meðal þeirra bestu á Costa Blanca.

Gestir Albir Garden hafa aðgang að líkamsræktaraðstöð og heilsulind þar sem meðal annars er innilaug, nuddpottur, sána, tyrkneskt bað og nuddherbergi auk þess sem hægt er panta bæði hand- og fótsnyrtingu gegn gjaldi.

Íþróttasvæði er við hótelið með tennisvelli, blakvelli og hlaupabrautum. Biljarð, borðtennis og pílukast er einnig í boði.

Eins og áður segir er Albir rólegur bær en fyrir þá sem vilja kíkja í verslanir eða á fjörugt næturlíf er stutt að aka til Benidorm og þangað eru líka fínar almenningssamgöngur. Skemmtigarðar eins og Terra Mitica (tívolí) og Aqualandia (vatnsskemmtigarður) eru skammt undan. Vart þarf að nefna að golfvellir eru víða og kylfingar þurfa því engu að kvíða.

Ath. yfir vetrartíma er vatnsrennibrautir í garðinum ekki opnar.

Fjarlægðir

  • Frá flugvelli: 65 km
  • Frá miðbæ: 1,6 km
  • Frá strönd: 15 mínútur
  • Veitingastaðir: Á hótelinu og í nágrenninu

Aðstaða

  • Nettenging: Þráðlaus nettenging á sameiginlegum svæðum án endurgjalds, en gegn gjaldi í íbúðum
  • Barnasundlaug
  • Sundlaug
  • Líkamsrækt
  • Heilsulind
  • Gestamóttaka
  • Barnaleiksvæði
  • Barnadagskrá
  • Bar
  • Veitingastaður
  • Skemmtidagskrá

Vistarverur

  • Íbúðir
  • Ísskápur
  • Kaffivél
  • Loftkæling
  • Öryggishólf
  • Sjónvarp

Fæði

  • Allt innifalið, Hálft fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun