fbpx Cristal Palace, Madonna | Vita

Cristal Palace, Madonna
4 stars

Vefsíða hótels

Glæsilegt fjögurra stjörnu superior hótel staðsett mjög ofarlega í Madonna en þaðan er afar fallegt útsýni bæði yfir bæinn sjálfan og skíðabrekkurnar sem eru allt um kring.

Á hótelinu er mjög góð aðstaða eins og móttaka opin allan sólarhringinn, bar, veitingastaður og heilsulind. Hægt er að velja um að vera með morgunmat innifalinn eða hálft fæði (morgunmatur og kvöldmatur).

Í heilsulindinni má meðal annars finna innisundlaug, sauna, ýmis konar nuddþjónustu sem hægt er að fá gegn gjaldi, hvíldarherbergi og ýmislegt fleira.  

Hægt er að velja um ýmsar herbergjatýpur en öll herbergin eiga það sameiginlegt að vera fallega innréttuð í suður tírólskum stíl og bjóða upp á öll helstu þægindi eins og sjónvarp, síma, hárþurrku, öryggishólf og þráðlaust internet.

Upphituð skíðageymsla er fyrir skíði og skíðaskó. Þar sem hótelið er ekki alveg við næsta skíðakláf eða í um 200 metra fjarlægð, er hægt að taka "privat" skíðarútu frá hótelinu að næsta kláf.

Ath. Ferðamannaskatturinn í Madonna er ekki innifalinn í verði ferðarinnar. Hann greiðist á hóteli við brottför. Sjá nánar undir hagnýtar upplýsingar. Einnig þarf að bóka aukalega gegn gjaldi ferðir til og frá flugvelli í Verona og skíðapoka.

Fjarlægðir

  • Frá miðbæ: 10 mínútna gangur (hótelið stendur efst í brekku)
  • Frá skíðalyftu: 200 metrar

Aðstaða

  • Þráðlaust net
  • Gestamóttaka
  • Bar
  • Veitingastaður
  • Sundlaug
  • Gufubað
  • Heilsulind
  • Líkamsrækt
  • Upphituð skíðageymsla

Vistarverur

  • Minibar
  • Sjónvarp
  • Öryggishólf
  • Hárþurrka
  • Baðsloppar
  • Baðvörur
  • Herbergi

Fæði

  • Morgunmatur, Hálft fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun