fbpx Gara Suites Golf & Spa | Vita

Gara Suites Golf & Spa, Playa de las Americas
4 stars

Vefsíða hótels
  • pin Created with Sketch.

Skemmtilegt fjögurra stjörnu hótel, alveg við Las Américas-golfvöllinn á Amerísku ströndinni, sem býður upp á allt það helsta í þægindum og þjónustu á besta stað. Tilvalið fyrir golfara og alla þá sem vilja njóta lífsins á frábærum stað á suðurhluta Tenerife.

Gara Suites er nánast umlukið Golf Las Américas, einum stærsta og flottasta golfvelli svæðisins, og í um 30 mín göngufæri frá miðbæ Playa Las Américas. Ekki er skutla frá hótelinu og niður á strönd. Um einn kílómetri í vatnsrennibrautagarðinn Siam Park og stutt á flugvöllinn.

Á hótelinu er þægilegur sundlaugagarður með þremur laugum, tveimur upphituðum og einni lítilli sem hentar vel fyrir börnin auk hefðbundinnar sólbaðsaðstöðu. Tveir veitingastaðir eru á svæðinu, einn sem býður upp á Miðjarðarhafsmatargerð og einn þar sem hægt er að gæða sér á fjölbreyttum réttum frá Asíu. Einnig er boðið upp á veglegt morgunverðarhlaðborð. Tveir barir eru til staðar fyrir þyrsta ferðalanga, annar er útibar á veröndinni við sundlaugina og hinn er kokteilbarinn Pacífico. Hótelið státar einnig af stórri heilsulind þar sem hægt er að komast í gott dekur og slökun og að auki eru til staðar líkamsræktaraðstaða og snyrtistofa. Á svæðinu eru líka leikvöllur fyrir börnin, spilasalur með tölvuleikjum o.fl. og sérstök aðstaða fyrir reiðhjólafólk. Aðeins eru um 200 metrar í klúbbhúsið á Las Américas-golfvellinum og hægt er að leigja allan helsta búnað og bóka ferðir á aðra golfvelli.

Herbergin eru litlar svítur eða íbúðir, sumar á tveimur hæðum, flestar með rúmum fyrir tvo og svefnsófa. Allar eru þær innréttaðar á einfaldan en þægilegan máta með flísum á gólfi, setuaðstöðu, borðsvæði og einkasvölum eða verönd, auk þess sem helstu þægindi eru til staðar eins og loftkæling, öryggishólf, minibar, þvottagrind og ókeypis þráðlaust internet.

Á Gara Suites má finna allt það helsta sem til þarf svo að fríið verði ógleymanlegt fyrir alla fjölskylduna.

Aðstaða

  • Sundlaugabar
  • Barnasundlaug
  • Sundlaug
  • Barnaleiksvæði
  • Líkamsrækt
  • Heilsulind
  • Veitingastaður
  • Gestamóttaka
  • Bar

Vistarverur

  • Sjónvarp
  • Minibar
  • Verönd/svalir
  • Loftkæling
  • Þráðlaust net
  • Öryggishólf
  • Sturta
  • Hárþurrka

Fæði

  • Án fæðis, Morgunmatur, Hálft fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun