fbpx Melia Benidorm. Flott hótel nálægt Levante, Benidorm

Melia Benidorm
4 stars

Vefsíða hótels

Melia Benidorm er fínt og flott hótel á góðum stað. Um 10 min gangur að Levante-ströndinni.
Glæsileg sameiginleg salarkynni, frábær sundlaugargarður og vel útbúnin heilsulind með upphitaðri innisundlaug.

Á hótelinu eru 526 björt og rúmgóð herbergi. Þau eru með svalir sem snúa ýmist út að hafi eða inn í garðinn. Hótelið er þó ekki alveg við ströndina. Hægt er að fá samliggjandi herbergi með ,,superior" herbergjum.

Athugið að VITA mælir með að bókað sé Superior herbergi fyrir 3 aðila ásamt ungabarni þar sem standard herbergin rúma ekki bæði auka rúm og barnarúm.
Í öllum herbergjum er gervihnattasjónvarp, sími, internet, útvarp, smábar, loftkæling, hárþurrka, marmaragólf, skrifborð, sófi og öryggishólf sem rúmar fartölvu (gegn gjaldi). Á baðherbergjum er baðkar með sturtuhaus.

El Curt er hlaðborðsveitingastaður hótelsins. Á El Moralet og á sundlaugarbarnum Chiringuito L'Illa er hægt að fá snarl og léttari rétti (ekki innifalið í verði fyrir hálft fæði). Á barnum er svo líf og fjör og oft skemmtidagskrá á kvöldin.

Sundlaugargarðurinn er stór og glæsilegur, þar eru tvær stórar sundlaugar, barnalaug og sérstakt svæði fyrir börnin.

Krakkaklúbbur er starfræktur hluta úr ári og einnig er leikjaherbergi á staðnum.

Í heilsuræktinni er boðið upp á fjölbreytt úrval snyrti- og nuddmeðferða gegn gjaldi auk þess sem hægt er að fá nudd á herbergjum.

Við sundlaugina er hægt að leigja handklæði. Greiða þarf 10 Evru tryggingagjald fyrsta daginn, sem fæst endurgreitt ef hótelgestir skila handklæðum sínum.

Gott hótel á fínum stað, rétt hjá Levante ströndinni. Fín sameiginlega salarkynni með tveimur byggingum, Poniente og Levante. 

Fjarlægðir

  • Frá flugvelli: 56 km - 50 mín
  • Frá miðbæ: 2,5 km í gamla bæinn
  • Frá strönd: 900 metrar að Levante ströndinni
  • Veitingastaðir: Á hóteli og allt um kring

Aðstaða

  • Nettenging: Frítt Wi-fi, það þarf að biðja um aðgangsorð í móttöku
  • Barnasundlaug
  • Sundlaug
  • Líkamsrækt
  • Heilsulind
  • Gestamóttaka
  • Bar
  • Veitingastaður
  • Skemmtidagskrá

Vistarverur

  • Herbergi
  • Verönd/svali
  • Loftkæling
  • Sjónvarp
  • Öryggishólf: Gegn gjaldi, 1,50 evra á dag 10 evru trygging
  • Minibar
  • Hárþurrka

Fæði

  • Fullt fæði, Hálft fæði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun