Vila Baleira Funchal
Vefsíða hótels
Vila Baleira Funchal er gott 4 stjörnu "boutique" hótel staðsett í um 20 mín göngufæri frá miðbæ Funchal og steinsnar frá strönd, í Lido hverfinu. Gestamóttakan er litrík og snyrtileg. Bar og veitingastaður þar sem morgunverðarhlaðborð er borið fram, ásamt kvöldverðarmatseðli er á hótelinu. Lítill sundlaugargarður með sólbekkjum er á þaki hótelsins og þaðan er fallegt útsýni til sjávar. Sundlaugarbar er í garðinum þar sem hægt er að frá snarl og drykki.
Herbergin eru snyrtileg og öll með svölum. Loftkæling er í herbergjum, sjónvarp, hárþurrka og minibar. Frítt þráðlaust net er um allt hótelið. Herbergin geta ýmist verið með baðkari eða sturtu.
Aðstaða
- Sundlaug
- Veitingastaður
- Bar
- Gestamóttaka
- Herbergi
- Þráðlaust net
Vistarverur
- Sjónvarp
- Loftkæling
- Minibar
- Hárþurrka
- Herbergi
Fæði
- Morgunmatur