fbpx Aðventan á Rín | Vita

Aðventan á Rín

Sigling og jólamarkaðir

Bókaðu þína ferð
Báðar leiðir
Aðra leið

Myndagallerí

Ógleymanleg sigling á aðventu

Jólamarkaðir og sigling á Rín
2-9. desember.
Fararstjóri : Astrid Helgadóttir.

Uppselt

Frankfurt, Köln, Germersheim/Speyer, Strassbourg, Mainz, Koblens 


strassbourg_france_rin_christmas.jpg

Stutt ferðalýsing 
Flogið með Icelandair til Frankfurt í morgunflugi 2. desember og ekið á hótel í Köln þar sem gist er eina nótt fyrir siglingu. 3. desember er farið um borð í A- Rosa Silva og siglt af stað kl 17:00. Komið við í dásamlegum borgum og bæjum,  sem allir eru rómaðir fyrir jólamarkaði sína. Komið í land aftur í Köln 8. desember og þá er ekið til Koblenz, þar sem gist verður eina nótt og flogið heim um miðjan dag 9. desember frá Frankfurt 

Flug:

Flugnúmer dags Flugvöllur kl  Flugvöllur kl
FI520 2. desember Keflavík 07:25 Frankfurt 12:05
FI521 9. desember Frankfurt 13:05 Keflavík 15:55

A_Rosa_River_Cruise.jpg

 Siglingaleiðin

Dagur Áfangastaður koma Brottför
3. desember Köln, Þýskalandi   17:00
4. desember Rudesheim, Þýskalandi 10:00 18:00
5. desember Germersheim/Speyer, Þýskalandi 08:00 19:00
6. desember Kehl (Strassbourg), Þýskalandi ( Frakklandi) 07:00 18:00
7. desember Mainz, Þýskalandi 06:00 12:00
7. desember Siglt fram hjá Lorelay, eftir hádegið    
7. desember Koblenz, Þýskalandi 18:30 21:30
8. desember Köln, Þýskalandi  05:00  

A-Rosa Silva
A-Rosa, Silva er fljótabátur sem siglir á Rín, í eigu skipafélagsins A-Rosa sem er þýskt skipafélag. Donna er 135 m. á lengd og 11,4 m á breidd. Á þessu skipi eru 95 klefar og svítur, allir búnir góðum þægindum. Klefarnir eru ýmist með glugga eða með svokölluðum Juliette-svölum. Klefarnir eru allir með öryggishólfi, loftkælingu, sjónvarpi og hárblásara, baðherbergin með snyrtivörum og sloppum, rúmgott sólardekk með sundlaug, gufubaði, púttvelli og stóru taflborði auk annarra leiktækja. Veitingastaðir, hlaðborð og einnig grill og a la carte staður og bar. Njótið fljótasiglinga á Rín sem er ein lengsta á í Evrópu og rennur í gegnum alls 10 lönd sem eru fleiri en nokkur önnur á.
Meðfram Rín má sjá mikið landslag, kastala, rómantísk þorp, líflegar borgir, gamla miðaldabæi, timburhús og nútímalegan arkitektúr.

Rín
Eftir að skógarnir sem náðu út í Rínarfljóteð voru fjarlægðir, þá hefur Rín liðast rólega áfram næstum alla leið frá upptökum til sjávar. Það er undursamlegt að sigla með fljótabát í nokkra daga og láta jólastressið hverfa. Sigla rólega meðfram kastölum, höllum og klaustrum og að bæjum sem búið er að klæða í jólabúningin. Þar er hægt að skoða og versla auk þess sem gaman er að smakka margs konar nasl eins og bökuð epli og púns undir fallegri tónlist brass bands.  


jolamarkadur_christmas_market_koln.jpg

Mánudagur 2. desember Frankfurt - Köln  
Flogið til Frankfurt með Icelandair í morgunflugi kl. 07:25 og lent í Frankfurt um kl.12:05. Það bíður rúta og ekið er til Kölnar og tekur aksturinn um tvær klukkustundir. Komið á hótel Mercure Severinhof þar sem gist er í eina nótt fyrir siglingu. Örstutt er á jólamarkaðina frá hótelinu.  


a-rosa_flora_silva_1.jpg

Þriðjudagur 3. desember A-Rosa Silva  
Morgunverður á hótelinu og um miðjan dag er ekið að skipi. A-Rosa Silva leggur af stað kl. 17:00. Kvöldverður og skemmtun er á skipinu öll kvöld.  


rudesheim_rin_sigling.jpg

Miðvikudagur 4. desember Rudesheim, Þýskalandi  
Íbúar bæjarins skilgreina stærsta aðdráttaraflið, hið heimsfræga Drosselgasse stræti, sem „144 metra af joie de vivre“ eða lífsgleði. Þetta er miðja rómantísku stefnunnar sem varð fjölda skálda og tónlistarmanna að innblæstri en sem dæmi samdi Brahms þriðju sinfóníuna sína á þessum slóðum. Rüdesheim er best þekkti staðurinn á Rheingau svæðinu og þar eru fjölmörg menningarleg kennileiti, glæsilegar byggingar og virki. Það sem fullkomnar svo heimsóknina til borgarinnar og nærsvæðis hennar er bolli af Rüdesheim kaffi sem kemur frá bænum. Jólamarkaðurinn í Rudesheim gengur undir nafninu Jólamarkaður Þjóðanna eða “Christmas Market of Nations þar sem er boðið upp á vörur frá yfir 20 þjóðum frá þremur heimsálfum. 


speyer_germany_rin.jpg

Fimmtudagur 5. desember Germersheim/Speyer, Þýskalndi. 
Við efri hluta Rínar er Germersheim sem er aðeins í um 20 km fjarlægð frá Speyer þar sem Silva kemur að landi. Speyer er einn elsti miðaldabær í Þýskaland en hún er yfir 2000 ára gömul. Jólamarkaðurinn, sem er töfrum líkastur, er blanda af hefðum, menningu og gleði og færir gestum sannarlega jólaandann. 


strassbourg_france_cruise_rin.jpg

Föstudagur 6. desember Strassbourg (Kehl)
Í dag er það Srassbourg í Frakklandi. Strassbourg er ein af þessum gömlu borgum með miðalda timburhúsum og glæsilegum borgarhöllum. Hápunkturinn er dómkirkjan og hægt er að horfa yfir gömlu timburhúsin af útsýnispallinum. Njótið dagsins í franska hluta Rínarhéraðsins.


mainz_germany_christmas_rin.jpg

Laugardagur 7. desember Fyrir hádegi Mainz, Þýskalandi 
Mainz bleibt Mainz (eða ‘Mainz er alltaf Mainz’) er meira en bara máltæki því þessi fullyrðing lýsir hinum afslappaða lífsstíl sem íbúar borgarinnar eru stoltir af. Þetta viðhorf gerir borgina að ánægjulegum viðkomustað fyrir ferðamenn því hér er tekið einstaklega vel á móti nýju fólki. Tvö þúsund ára saga Mainz gerir borgina að einni af elstu borgum Þýskalands og í henni getur þú séð söguna lifna við á hverju götuhorni. Missið ekki af því að heimsækja sögulega jólamarkaðinn á Domplatz. Upplýsta og skreytta dómkirkjan mun án efa heilla. 


loreley_cliff_rin.jpg

Laugardagur 7. desember siglt um Loreley eftir hádegið  
Siglt meðfram Loreley klettinum sem er 132m hár og skagar út í Rín. Kletturinn gefur frá sér bergmál og segir sagan að falleg mey hafi kastað sér út í Rín í örvæntingu yfir trúlausum elskuhuga og breyst í sírenu sem kokkaði sjómenn til glötunar.  


koblenz_rin_germany_river_cruise.jpg

Laugardagur 7. desember Koblenz, Þýskalandi kvöld 
Í siglingunni um Rín gefst tækifæri til að skoða Koblenz. Saga borgarinnar nær aftur um yfir 2000 ár sem gerir hana eina af elstu borgum í Þýskalandi. Borgarmyndin er falleg og þar eru fjölmörg sögu- og menningarleg kennileiti. Skoðaðu hallirnar í Koblenz, virðulegar byggingar, glæsileg íbúðarhús, þröng stræti og rómantísk götuhorn. Njóttu útsýnisins á meðan A-ROSA Silva siglir meðfram hinu fræga Deutsches Eck, nesinu þar sem árnar Mósel og Rín mætast. Njótið Kvöldsins í Koblenz.  


koln_cologne_christmas_markadur.jpg

Sunnudagur 8. desember Köln, Þýskalandi. 
Komið aftur í land í Köln snemma morguns, eða um kl. 05:00 en byrjað á morgunveði og síðan er farið frá borði. Rúta bíður hópsins og ekið er til Koblenz á hótel Mercure Koblenz þar sem gist er síðustu nóttina. Þá er hægt að skoða og njóta Koblenz að degi til.  


koln_cologne.jpg

Mánudagur 9. desember Koblenz – Frankfurt heimferð 
Eftir morgunverð á hótelinu er ekið til Frankfurt, aksturinn tekur rétt rúma klukkustund.  Þaðan verður flogið heim til Keflavíkur kl. 13:05 og lent um kl. 15:55  

Sjá nánari ferðalýsingu
Bókaðu þína ferð
Báðar leiðir
Aðra leið
  • Hagnýtar upplýsingar

  • Verð og innifalið

Gististaðir

Kort

Sjá alla gististaði
  • Veðrið

  • Flugtími

    Kef FRA

    4 klst

    Morgunflug

  • Gjaldmiðill

    Evra

    Gengi

Sjá Kortasýn Sjá gististaði

Við notum vefkökur (e.cookies) t.d. til að greina umferð um vefinn og til að bæta upplifun notanda á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú vefkökuskilmála VITA

Nánari upplýsingar um vefkökunotkun